- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efst á baugi

- Auglýsing -

Til stendur að landsliðið fari til Færeyja í dag

Vonir standa til þess að kvennalandsliðið í handknattleik komist til Færeyja í dag þrátt fyrir að flugi Icelandair sem til stóð að færi frá Keflavíkurflugvelli klukkan 10.35 hafi verið aflýst. Íslenski hópurinn, sem telur 22, hefur verið bókaður með...

Staðfest að Viggó fari til Flensburg

Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, verður leikmaður SG Flensburg-Handewitt frá og með sumrinu 2027 þegar samningur hans við HC Erlangen rennur sitt skeið á enda. Þetta var staðfest í samfélagsmiðlum Flensburg og HC Erlangen í morgun. Samningur Viggó við...

Molakaffi: Viktor, Tjörvi, Sveinn, staðan

Viktor Gísli Hallgrímsson varði sex skot, 40%, er hann var annan hálfleikinn í marki Barcelona í stórsigri á Cajasol Ángel Ximénez P. Genil, 38:23, á útivelli í 23. umferð spænsku 1. deildarinnar í handknattleik í fyrradag. Barcelona hefur sem...
- Auglýsing -

Flugi til Færeyja í dag hefur verið aflýst

Flugi frá Icelandair frá Keflavíkurflugvelli til Vogaflugvallar í Færeyjum hefur verið aflýst, eftir því sem fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar. Til stóð að kvennalandsliðið færi með flugferðinni sem leggja átti af stað klukkan 10.35. Í uppsiglingu er óveður á...

Veður raskar vonandi ekki Færeyjaferð

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, segir að áætlun kvennalandsliðsins um för til Færeyja í fyrramálið standi eins og sakir standa þrátt fyrir afar slæma veðurspá fyrri morgundaginn. Vonir standa til þess að veðrið bresti ekki á af fullum...

Eyjapeyjar í fimmta sæti í Lúxemborg – Sigurmundur Gísli í úrvalsliðinu

Handboltapeyjar úr ÍBV, fæddir 2009 og 2010, höfnuðu í 5. sæti á alþjóðlegu móti sem hófst í Dudelange í Lúxemborg í gærmorgun og lauk síðdegis í dag. ÍBV-liðið vann fimm af sex viðureignum sínum á mótinu sem 16 lið...
- Auglýsing -

Andri Már allt í öllu í fjarveru Viggós

Þrátt fyrir fjarveru Viggós Kristjánssonar þá unnu leikmenn HC Erlangen kærkominn sigur á Rhein-Neckar Löwen, 29:27, á heimavelli í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Andri Már Rúnarsson beit í skjaldarrendur í fjarveru landa síns og skoraði fimm...

Bjarki Már með á ný – Tveir íslenskir sigrar í Ungverjalandi

Bjarki Már Elísson lék í gær sinn fyrsta leik með One Veszprém eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Hann skoraði fjögur mörk í 12 marka sigri ungversku meistaranna á grannliðinu Balatonfüredi KSE, 32:20. Þetta var 21. sigur One Veszprém...

Molakaffi: Monsi, Ólafur, Tumi, Tryggvi, Hannes

Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði tvö mörk fyrir RK Alkaloid þegar liðið vann HC Butel Skopje, 37:21, í úrslitakeppni liðanna í efri hluta í úrvalsdeildinni í Norður Makedóníu í gær. RK Alkaloid er í þriðja sæti af sex liðum. Ólafur...
- Auglýsing -

Donni og félagar fóru vel af stað

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF fóru vel af stað í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Þeir unnu Bjerringbro/Silkeborg á útivelli, 41:36, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 20:14. Donni skoraði tvö...

Stjarnan mætir Herði í kapphlaupi um sæti í Olísdeildinni

Stjarnan lagði Fjölni, 30:27, í oddaleik í undanúrslitum umspils Olísdeildar karla í handknattleik í Hekluhöllinni síðdegis. Þar með fellur í hlut Stjörnunnar að mæta Herði í úrslitum umspilsins. Fyrsta viðureign liðanna er ráðgerð miðvikudaginn 8. apríl í Hekluhöllinni. Liðið...

Landsliðskonurnar eru deildarmeistarar í Þýskalandi

Íslendingaliðið HSG Blomberg-Lippe varð í kvöld deildarmeistari í efstu deild þýska handknattleiksins eftir sigur á Dortmund á heimavelli, 33:31, í uppgjöri tveggja efstu liða deildarinnar. Leikið var á heimavelli HSG Blomberg-Lippe, Sporthalle an der Ulmenallee. Þar með hefur Blomberg-Lippe...
- Auglýsing -

Kvennalandsliðið fær mikinn stuðning – uppselt er á leikinn við Portúgal

Uppselt er á landsleik Íslands og Portúgals í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik sunnudaginn eftir viku, 12. apríl í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum. HSÍ tilkynnti í morgun að síðustu aðgöngumiðarnir hefðu verið sóttir í sölukerfi stubb.is. Allir aðgöngumiðarnir voru...

Molakaffi: Tryggvi, Einar, Arnór, Gensheimer, Wagner

Tryggvi Þórisson og liðsfélagar í Elverum voru ekki lengi að sleikja sárin eftir 12 marka tap fyrir Montpellier í Evrópudeildinni á þriðjudaginn. Þeir mættu til leiks í gær og innsigluðu norska meistaratitilinn annað árið í röð. Elverum vann Kristiansand...

Góð staða hjá Lenu og félögum eftir sigur í Västerås

Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu þegar lið hennar, Skara HF, vann VästeråsIrsta HF, 30:27, í annarri viðureign liðanna í dag í 8-liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Västerås. Skara HF hefur þar...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -