Tveir leikmenn Gróttu og tveir úr Fram eru í liði nóvember mánaðar sem tölfræðiveitan HBStatz tók saman úr gögnum sínum og birti fyrr í dag.
Einar Baldvin Baldvinsson, markvörður, og Andri Þór Helgason, vinstri hornamaður Gróttu, eru í liðinu auk...
Benedikt Gunnar Óskarsson leikmaður Vals var besti leikmaður Olísdeildar karla í handknattleik í nóvember samkvæmt niðurstöðum tölfræðiveitunnar HBStatz sem birti samantekt sína í dag.
Valsarinn ungi skoraði að jafnaði sjö mörk í leik með Val í nóvember og var var...
Aron Pálmarsson verður ekki með danska meistaraliðinu Aalborg Håndbold í kvöld þegar það tekur á móti ungversku meisturunum Pick Szeged í Meistaradeild Evrópu í handknattleik. Aron er ekki á leikskýrslu sem birt hefur verið fyrir leikinn sem hefst klukkan...
Tvö efstu lið Olísdeildar karla, Haukar og FH, hefja 11. umferð deildarinnar í sannkölluðum stórleik á heimavelli FH, Kaplakrika, í kvöld. Flautað verður leiks klukkan 19.30.
Reynt verður að tryggja góða stemningu á Hafnarfjarðarslagnum. Þess vegna verður opið fyrir 500...
Austurríska landsliðið í handkattleik kvenna verður án landsliðsþjálfara síns, Herbert Müller, og aðstoðarþjálfarans Erwin Gierlinger, á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem hefst á Spáni í dag. Báðir urðu þeir eftir heima í Austurríki eftir að hafa greinst með kórónuveiruna skömmu...
ÍR-ingar sitja einir í öðru sæti Grill66-deildar karla í handknattleik eftir að þeir unnu ungmennalið Selfoss með þriggja marka mun, 32:29, í Austurbergi í kvöld. ÍR var einnig þremur mörkum yfir í hálfleik, 15:12.
Örvhenta skyttan efnilega, Ísak Gústafsson,...
Landsliðsmennirnir Bjarki Már Elísson hjá Lemgo og Ómar Ingi Magnússon hjá SC Magdeburg er meðal þeirra sem hægt er að kjósa um í vali á leikmanni nóvembermánaðar í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Báðir fór þeir á kostum með...
Serbneska handknattleikskonan hjá ÍBV, Marija Jovanovic, var valin í serbneska landsliðið sem tekur þátt í heimsmeistaramótinu á Spáni en mótið verður sett á morgun. Af þeim sökum leikur ÍBV vart fleiri leiki í Olísdeildinni fyrr en eftir áramót.
Jovanovic gekk...
„Hamza hefur leikið með okkur fjóra hálfleika og verið algjörlega frábær í þremum,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari karlaliðs Víkings, spurður um fransk/túníska handknattleiksmanninn Hamza Kablouti sem Víkingur fékk að láni frá Aftureldingu á dögunum.
Kablouti hefur skorað 16 mörk...
Allt fór í bál og brand á milli leikmanna Vrbas og Kolubara í serbnesku 2. deildinni í handknattleik á dögunum eftir að til stympinga kom á milli tveggja leikmanna liðanna í kappleik. Fór svo að öllum leikmönnum liðanna laust...
Einn leikur er á dagskrá Íslandsmótsins í handknattleik karla í kvöld. Ungmennalið Selfoss sækir ÍR-inga heim í Austurberg klukkan 20.15 í Grill66-deild karla. Viðureignin er úr fjórðu umferð en henni varð að fresta á sínum tíma þegar kórónuveira herjaði...
Aðalsteinn Eyjólfsson hefur skrifað undir nýjan samning við svissneska handknattleiksliðið Kadetten Schaffhausen. Nýi samingurinn gildir fram á mitt árið 2023 en fyrri samningur var með gildistíma til loka júní á næsta ári. Kadetten varð bikarmeistari í Sviss á síðasta...
Þátttaka landsliðs Litáen á Evrópumeistaramótinu í handknattleik karla í janúar er í mikilli óvissu um þessar mundir. Segja má að velunnarar landsliðsins hafi sent út neyðarkall af þessu tilefni.
Fjárhagur handknattleikssambands landsins stendur á slíkum brauðfótum að svo kann...
„Við vildum þetta meira,“ sagði Jón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari Víkinga í samtali við handbolta.is í kvöld eftir fjögurra marka sigur liðsins á HK, 26:22, í Olísdeild karla í handknattleik í Víkinni í kvöld.
„Það var mikilvægt að komast yfir undir...
„Við vorum að reyna. Menn gáfu allt af sér en sennilega hefði mátt hella meira hugrekki yfir þessa baráttu sem sést kannski best á hversu mörg mistök við gerðum án þess að vera þvingaðir til þeirra,“ sagði Sebastian Alexandersson...