- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Lokahóf: Gleði og góður matur – Haukar gerðu upp keppnistímabilið

Handknattleiksdeild Hauka lokaði tímabilinu með skínandi lokahófi um daginn. Það var sannkölluð Haukastemning þar sem leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar komu saman til að fagna árangri, seiglu og samstöðu. Kvöldið var fyllt af gleði, hlátri og góðum mat, eftir því...

Molakaffi: Dagur, Grétar, Aalborg Håndbold

Dagur Gautason og liðsfélagar í Montpellier unnu PAUC, 31:27, á útivelli í síðustu umferð frönsku 1. deildarinnar í handknattleik í gær. Dagur skoraði ekki mark á þeim 30 mínútum sem hann tók beint þátt í leiknum en um var...

Þriggja marka tap fyrir Þjóðverjum í síðasta leik Nordic Open

Landslið Íslands í handknattleik, skipað leikmönnum 17 ára og í yngri í karlaflokki, tapaði síðasta leik sínum á Nordic Open-mótinu sem hófst í Færeyjum á föstudag og lýkur í dag. Þýska landsliðið reyndist ofjarl íslenska liðsins í morgun þegar...
- Auglýsing -

Minden í efstu deild á ný – Arnór og liðsfélagar unnu deildina með yfirburðum

Gamla stórliðið GWD Minden tryggði sér sæti í efstu deild á nýjan leik eftir nokkurra ára fjarveru í spennandi lokaumferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik í gær. Minden-liðið fylgir þar með lærisveinum Arnórs Þórs Gunnarssonar í Bergischer HC upp...

Orri Freyr hafði betur í Íslendingaslag í bikarúrslitum í Portúgal

Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting fögnuðu sigri á Porto í úrslitaleik portúgölsku bikarkeppninnar í handknattleik síðdegis, 28:27. Aðeins er vika síðan Sporting vann Porto í síðustu umferð úrslitakeppninnar og innsiglaði sér meistaratitilinn annað árið í röð. Sporting...

Fjögurra marka sigur á Sviss í þjóðarhöllinni

Piltarnir í 17 ára landsliði Íslands í handknattleik unnu landslið Sviss, 34:30, í kaflaskiptum leik í annarri umferð af þremur á Nordic Open mótinu í Færeyjum í dag. Leikið var í nýrri þjóðarhöll Færeyinga, Við Tjarnir.Þetta er annar sigur...
- Auglýsing -

Jón Karl tekur slaginn í Olísdeildinni

Jón Karl Einarsson hefur samið við Hauka á ný um að leika með meistaraflokki félagsins næstu ár. Jón Karl sem er uppalinn Haukamaður og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk tímabilið 2019-2020. Jón Karl sem leikur að jafnaði í vinstra...

Arnór fyrstur Íslendinga kjörinn þjálfari ársins í Danmörku

Arnór Atlason þjálfari TTH Holstebro var kjörinn þjálfari ársins í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki. Að valinu stendur danska handknattleikssambandið en þjálfarar í úrvalsdeildunum tóku þátt í kjörinu auk landsliðsþjálfara Danmerkur. Arnór, sem einnig er aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, er að...

Heilt yfir vorum við alveg hrikalega góðir

„Tímabilið var alveg magnað en um leið þurftum við að hafa mikið fyrir árangrinum. Ekki er aðeins um að ræða vinnu núna heldur sem hefur verið undanfarin ár,“ segir Einar Jónsson þjálfari Íslands- og bikarmeistara Fram í handknattleik karla....
- Auglýsing -

Þjálfaramál Olísdeildar karla í höfn – helmingur liðanna gerði breytingar

Eftir KA tilkynnti í gær að hafi ráðið Andra Snæ Stefánsson þjálfara karlaliðs félagsins fyrir næstu leiktíð er komið á hreint hvaða þjálfarar stýra liðunum 12 sem leik í Olísdeild karla á næstu leiktíð. Helmingur liðanna verður með nýja...

Nítján lið sækjast eftir sextán sætum

Nítján félög sækjast eftir 16 sætum í Meistaradeild kvenna í handknattleik á næsta keppnistímabili. Af þeim eiga lið níu félaga vís sæti vegna landskvóta. Tíu félög verða að bíða niðurstöðu mótanefndar Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hvort þeim verður úthlutað keppnisrétti....

Molakaffi: Siewert, Olympiakos, Spánn, Heieren, RD Slovan

Jaron Siewert þjálfari Füchse Berlin hefur verið valinn þjálfari ársins í þýsku 1. deildinni í fyrsta sinn. Lið hans hefur verið frábært í deildinni á tímabilinu og situr í efsta sæti fyrir lokaumferðina á morgun. Olympiakos vann AEK Aþenu í...
- Auglýsing -

Eins marks sigur hjá 17 ára landsliðinu í Runavík

Piltarnir í 17 ára landsliðinu í handknattleik unnu færeyska jafnaldra sína í fyrstu umferð á Nordic Open-mótinu í Høllinni í Runavík í kvöld, 29:28. Færeyingar voru marki yfir í hálfleik, 16:15. Næsti leikur á mótinu verður á morgun í...

Hreppa silfurverðlaun annað árið í röð

Annað árið í röð verða Hannes Jón Jónsson og liðsmenn hans í Alpla Hard að gera sér silfurverðlaun að góðu í úrslitakeppninni í austurríska handknattleik. Alpla Hard tapaði öðru sinni í kvöld fyrir Krems í úrslitarimmunni um meistaratitilinn, 25:23....

Andri Snær tekur við þjálfun KA

Andri Snær Stefánsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs KA í Olísdeild karla. Hann tekur við af Halldóri Stefáni Haraldssyni sem hætti í vor eftir tveggja ára starf. Andri Snær var aðstoðarþjálfari KA-liðsins á síðustu leiktíð og ætti þar af...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -