Stian Tønnesen þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins HØJ Elite var látinn taka hatt sinn og staf fyrir helgina. Patrik Liljestrand aðstoðarþjálfara var gert að að gera það sama. HØJ Elite kom upp í úrvalsdeildina fyrir leiktíðina og rakaði til sín öflugum...
Handknattleikskonan Jana Mittún var í gær valin íþróttamaður eða íþróttanafn Færeyja 2025 í hófi sem haldið var í Þórshöfn. Hún er kjölfesta færeyska kvennalandsliðsins sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Hollandi á síðasta ári með góðum árangri....
Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í svissneska meistaraliðinu í Kadetten Schaffhausen töpuðu í gær sínum fyrsta leik á leiktíðinni í Sviss er þeir sóttu Wacker Thun heim. Lokatölur, 34:31. Óðinn Þór skoraði eitt mark úr eina markskotinu sem hann...
Líf og fjör verður víða á handboltavöllum í dag þegar fimm leikir í Olísdeild karla fara fram og einn leikur í Olísdeild kvenna. Einnig verður leikið í Grill 66-deildum karla og kvenna.
Leikir dagsins
Olísdeild karla, 17. umferð:Myntkaup-höllin: Afturelding - Valur,...
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk og Benedikt Gunnar Óskarsson tvö mörk þegar Kolstad vann Kristiansand TH, 38:28, á heimavelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Benedikt Gunnar átti níu stoðsendingar í leiknum en Sigvaldi Björn eina.
Sigurjón Guðmundsson...
Ólafur Brim Stefánsson fór afar vel af stað með ítalska A-deildarliðinu Junior Fasano í gær þegar liðið vann Alperia Black Devils, 31:27, á heimavelli í fyrsta leik liðsins á nýju ári. Ólafur Brim gekk til liðs við Junior Fasano...
„Það er rétt að stíga varlega til jarðar og vera ekki með of miklar yfirlýsingar í fjölmiðlum,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik í viðtali við handbolta.is spurður hvort hann vilji halda áfram en samningur hans við HSÍ...
Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður leikur til úrslita með Barcelona í spænsku bikarkeppninni á morgun gegn Atlético Valladolid. Barcelona lagði Bidasoa Irun, 37:31, í undanúrslitum í dag. Leikið var í Rita Hernández Island Pavilion in Telde á Gran Canaria.
Timothy N'Guessan...
Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe, sem landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir leika með, vann sitt fyrsta stig í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld með jafntefli, 30:30, við danska liðið Nykøbing Falster Håndbold. Leikið var í Nykøbing á...
Sara Dögg Hjaltadóttir átti stórleik fyrir ÍR í kvöld þegar liðið lagði Stjörnuna, 31:27, í 16. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Hekluhöllinni í Garðabæ. Sara Dögg skoraði 13 mörk og dró félaga sína áfram í átt að sigrinum...
Topplið sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla, IFK Kristianstad, vann grannliðið HF Karlskrona, 33:29, í viðureign liðanna í Karlskrona í dag. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði tvö mörk fyrir IFK og gaf sex stoðsendingar. Honum var einu sinni vikið af leikvelli.
Eyjamaðurinn...
Ekkert varð af fyrirhuguðum leik ÍR og HK í Olísdeild karla í handknattleik sem fram átti að fara á heimavelli í ÍR í Skógarseli frá klukkan 16 í dag.
Vísir segir frá að ekki hafi tekist að lyfta körfuboltakörfum...
Haukum tókst ekki að leggja stein í götu Vals í dag þegar liðin mættust í Olísdeild kvenna í handknattleik í N1-höllinni á Hlíðarenda. Valur vann öruggan sigur, 29:23, eftir að hafa verið fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik,...
Jóhannes Berg Andrason átti fínan leik með TTH Holstebro þegar liðsmenn Arnórs Atlasonar hófu leik á ný í dönsku úrvalsdeildinnni í handknattleik í dag eftir langt hlé. Jóhannes Berg skoraði fjögur mörk og var með fullkomna skotnýtingu í fimm...
Árni Stefán Guðjónsson þjálfari FH og leikmenn hans gátu farið með bros á vör heim úr Kaplakrika út í svalan en bjartan vetrardag eftir öruggan sigur á Fjölni, 27:20, í 16. umferð Grill 66-deildar kvenna í handknattleik. Með sigrinum...