- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fréttir

- Auglýsing -

Hákon Daði átti stórleik gegn Tjörva Tý og félögum

Hákon Daði Styrmisson fór mikinn í dag þegar Eintracht Hagen sótti HC Oppenweiler/Backnang heim til suður Þýskalands og vann með 11 marka mun, 42:31. Leikurinn var liður í 7. umferð 2. deildar þýska handknattleiksins. Hákon Daði skoraði 10 mörk, þrjú...

Koma til móts við landsliðið með sigurbros á vör – sjötti sigurinn í höfn

Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir, koma heim til móts við landsliðið með sigurbros á vör eftir sjötta sigur Blomberg-Lippe í dag í þýsku 1. deildinni. Blomberg-Lippe vann öruggan sigur á Sport-Union Neckarsulm, 29:20,...

Halldór og Þórey velja æfingahóp fyrir leikina við Grænlendinga

Á næsta fimmtudag og á laugardaginn eftir viku leikur 20 ára landslið kvenna tvo vináttuleiki hér á landi við A-landslið Grænlands í handknattleik kvenna. Halldór Stefán Haraldsson og Þórey Rósa Stefánsdóttir verða þjálfarar 20 ára landsliðsins í þessu verkefni....
- Auglýsing -

Miðdegiskaffi: Elín, Lena, Aldís, Berta, Guðmundur, Ísak, Katla, Jón, Tryggvi

Eftir sigur í þremur fyrstu leikjum tímabilsins í sænsku úrvalsdeildinni töpuðu Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof í dag í heimsókn til Höörs HK H 65, 31:22. Elín Klara átti stórleik og skoraði 10 mörk, þar af fimm...

Sjöunda tapið hjá Leipzig – Melsungen á sigurbraut

Lítið rætist úr málum hjá Blæ Hinrikssyni og liðsfélögum í Leipzig í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Í gær steinlá Leipzig í heimsókn til MT Melsungen, 34:25, í áttundu umferð er leikið var í Rothenbach-Halle, heimavelli Melsungen. Leipzig rekur...

Skoraði fimm mörk fyrir Íslandsferð

Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði fimm mörk í átta skotum þegar Porto vann Avanca Bioria Bondalti, 46:30, á heimavelli í gærkvöld. Með sigrinum skaust Porto a.m.k. um skeið í efsta sæti portúgölsku 1. deildarinnar með 19 stig í sjö leikjum. Þorsteinn...
- Auglýsing -

Alþjóðadagur handknattleiksdómara

Alþjóðadagur handknattleiksdómara er í dag laugardaginn 11. október. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, stendur að deginum en með honum er minnt á mikilvægi dómara á handboltaleikjum. Enginn leikur fer fram án dómara.

Molakaffi: Heiðmar, Aardahl, Portner, Pytlick, Vranjes, Vind, Penov

Heiðmar Felixson verður hugsanlega við stjórnvölin hjá þýska liðinu Hannover-Burgdorf í dag þegar það mætir Eisenach í þýsku 1. deildinni. Christian Prokop var með iðrakvef í gær og gat ekki stýrt æfingunni. Óvíst er hvort Prokop verði búinn að...

Ída Margrét tryggði annað stigið – Fyrsti sigur Aftureldingar

Ída Margrét Stefánsdóttir tryggði Gróttu annað stigið gegn FH í kvöld þegar hún skoraði tvö síðustu mörk viðureignar liðanna í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 20:20. FH-ingar voru hársbreidd frá því að vinna annan leikinn í röð en hafa nú náð...
- Auglýsing -

KA lagði meistarana – Bjarni Ófeigur fór á kostum

KA heldur áfram að gera það gott í Olísdeild karla í handknattleik. Í kvöld vann Akureyrarliðið Íslands- og bikarmeistara Fram í sjöttu umferð deildarinnar og það í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal, 32:28. Bjarni Ófeigur Valdimarsson átti enn einn stórleikinn fyrir...

Vandræði í Landeyjahöfn – frestað fram á sunnudag

Ekkert varð af leik ÍBV og Hauka í Olísdeild karla í handknattleik sem fram átti að fara í kvöld. Viðureigninni var frestað vegna þess að ferð Herjólfs frá Landeyjahöfn klukkan 15.45 í var slegin af vegna lélegra hafnarskilyrða. Haukar...

HK-ingar sýndu ÍR-ingum enga miskunn

HK sýndi engan miskunn í kvöld og skildi ÍR eitt eftir í neðsta sæti Olísdeildar karla í handknattleik. HK vann með tveggja marka mun, 30:28, eftir að hafa verið yfir stóran hluta síðari hálfleiks. Þetta var annar vinningur HK...
- Auglýsing -

Sá markahæsti kveður dönsku meistarana

Eftir 12 ára veru hjá danska meistaraliðinu, Aalborg Håndbold, hefur danski handknattleiksmaðurinn Buster Juul tilkynnt að hann ætli að róa á ný mið næsta sumar. Juul, sem er 32 ára gamall er markahæsti leikmaður í sögu Aalborg Håndbold. Hann...

Íslendingar í sigurliðum í Meistaradeildinni í gær

Fjórðu umferð af 14 í Meistaradeild karla í handknattleik lauk í gær með fjórum viðureignum. Úrslit leikjanna voru sem hér segir: A-riðill:One Veszprém - Kielce 35:33 (21:15).-Bjarki Már Elísson skoraði ekki fyrir One Veszprém.Füchse Berlin - Dinamo Búkarest 32:31 (16:18). Staðan: ...

Ekkert virðist geta stöðvað HK-inga

HK, undir stjórn Hilmars Guðlaugssonar, heldur áfram sigurgöngu sinni í Grill 66-deild kvenna. Í gærkvöld lagði HK lið Val 2, 29:19, í Kórnum í Kópavogi í upphafsleik 5. umferðar deildarinnar. Þar með hefur HK 10 stig að loknum fimm...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -