- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66-deildir

- Auglýsing -

Þrír efnilegir HK-ingar skrifa undir samninga

Forráðafólk handknattleiksdeildar HK slá ekki slöku við og heldur þar af leiðandi áfram að semja til lengri tíma við unga og efnilega leikmenn og þannig styrkja framtíðina hjá félaginu. Í tilkynningu frá HK í morgun segir að þrír efnilegir leikmenn...

Hörður og Hörður dæmdu hjá Herði

Svo skemmtilega hittist á í gær að nafnarnir og handknattleiksdómararnir, Hörður Aðalsteinsson og Hörður Kristinn Örvarsson, dæmdu saman viðureign hjá handknattleiksliði Harðar á Ísafirði í Grill 66-deild karla. Hörður mætti þá Víkingi í íþróttahúsinu á Ísafirði. Nafnarnir máttu til með...

Grill 66-deild: Víkingur fór suður með bæði stigin

Ásgeir Snær Vignisson tryggði Víkingi sigur á Herði, 33:32, er hann skoraði sigurmarkið skömmu fyrir leikslok í viðureign liðanna í íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði í gær. Með sigrinum endurheimti Víkingur efsta sæti Grill 66-deildar karla sem Gróttumenn höfðu...
- Auglýsing -

Dagskráin: Afturelding fær ÍBV í heimsókn – stórleikur á Ísafirði

Ekki verður slegið af við keppni á Íslandsmóti karla í handknattleik í dag. Framundan er síðasti leikur 7. umferðar Olísdeildar karla. ÍBV sækir Aftureldingu heim klukkan 15 og á harma að hefna eftir tap í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins á...

Tómas Bragi skoraði flautumark á Nesinu

Tómas Bragi Lorriaux Starrason tryggði Gróttu dramatískan sigur á Fjölni með svokölluðu flautumarki á síðustu sekúndu, 29:28, í viðureign liðanna í Grill 66-deild karla í handknattleik í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi. Tómas Bragi skoraði beint frá miðju vallarins áður en...

Dagskráin: Tveir leikir í tveimur deildum

Tveir leikir verða á dagskrá Íslandsmóts meistaraflokka karla í kvöld. Olísdeild karla, 7. umferð:Lambhagahöllin: Fram - ÍR, kl. 19.30. Staðan og næstu leikir í Olísdeildum. Grill 66-deild karla:Hertzhöllin: Grótta - Fjölnir, kl. 19.30. Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum. Leikir kvöldsins verða sendir...
- Auglýsing -

Víkingur fór upp að hlið Gróttu og Vals

Víkingur vann Fram 2 í síðasta leik 5. umferðar Grill 66-deildar kvenna í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal í dag, 29:25. Víkingur hafði þriggja marka forskot í hálfleik, 15:12. Með sigrinum færðist Víkingur upp að hlið Gróttu og Val 2 í annað...

Dagskráin: Heimaey og Úlfarsárdalur

Tveir leikir fara fram á Íslandsmóti meistaraflokka karla og kvenna í dag. Vonir standa til þess að mögulegt verði að koma á viðureign ÍBV og Hauka í Olísdeild karla sem varð að fresta á föstudaginn vegna slæmra skilyrða í...

Víkingur einn og ósigraður í efsta sæti

Víkingur situr einn í efsta sæti Grill 66-deildar karla eftir leiki 6. umferðar í gær. Víkingur lagði Fram 2 örugglega í Safamýri, 39:33, efir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 19:13. Þetta var um leið fyrsta tap...
- Auglýsing -

Dagskráin: Sjötta umferð Grill 66-deildar karla

Heil umferð, sú sjötta á þessari leiktíð í Grill 66-deild karla, verður leikin í dag. Grill 66-deild karla, 6. umferð: N1-höllin: Valur 2 - Grótta, kl. 13.30.Fjölnishöllin: Fjölnir - HBH, kl. 14.Myntkauphöllin: Hvíti Riddarinn - HK 2, kl. 14.30Ásvellir: Haukar...

Ída Margrét tryggði annað stigið – Fyrsti sigur Aftureldingar

Ída Margrét Stefánsdóttir tryggði Gróttu annað stigið gegn FH í kvöld þegar hún skoraði tvö síðustu mörk viðureignar liðanna í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi, 20:20. FH-ingar voru hársbreidd frá því að vinna annan leikinn í röð en hafa nú náð...

Dagskráin: Sjöttu umferð lýkur og tveir leikir í Grill 66-deild

Leikið verður í Olísdeild karla og Grill 66-deild kvenna í kvöld á Íslandsmóti meistaraflokka karla og kvenna. Hér fyrir neðan er leikjdagskráin. Olísdeild karla, 6. umferð:Kórinn: HK - ÍR, kl. 18.30.Vestmannaeyjar: ÍBV - Haukar, kl. 18.45.Lambhagahöllin: Fram - KA, kl....
- Auglýsing -

Ekkert virðist geta stöðvað HK-inga

HK, undir stjórn Hilmars Guðlaugssonar, heldur áfram sigurgöngu sinni í Grill 66-deild kvenna. Í gærkvöld lagði HK lið Val 2, 29:19, í Kórnum í Kópavogi í upphafsleik 5. umferðar deildarinnar. Þar með hefur HK 10 stig að loknum fimm...

Dagskráin: Fimm leikir í kvöld í þremur deildum

Þrír leikir verða á dagskrá Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar sjötta umferð hefst. Fimmtu umferð Olísdeildar kvenna lýkur í kvöld með viðureign Selfoss og Stjörnunnar í Sethöllinni klukkan 20, tveimur stundum eftir að karlalið sömu félaga mætast...

Fjögur úrskurðuð í leikbann – fimm fengu áminningu

Fjögur voru úrskurðuð í eins leiks bann á fundi aganefndar HSÍ í gær en fimm sluppu með áminningu, þ.e. voru minnt á stighækkandi áhrifum af brotum sem fylgja útlokunum frá kappleikjum. Leikbönnin taka gildi á morgun, fimmtudaginn 9. október....
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -