- Auglýsing -
- Auglýsing -

Okkar fólk úti

- Auglýsing -

Einar Bragi og félagar tylltu sér á toppinn

Einar Bragi Aðalsteinsson og liðsfélagar í IFK Kristianstad endurnýjuðu kynnin við efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar þegar þeir sóttu IF Hallby HK heim og unnu með fimm marka mun, 35:30. Einar Bragi skoraði þrjú mörk í sex skotum og gaf...

Arnar Freyr og Reynir Þór skoruðu þrjú mörk hvor

Arnar Freyr Arnarsson og Reynir Þór Stefánsson skoruðu þrjú mörk hvor þegar lið þeirra MT Melsungen vann Stuttgart, 33:28, á heimavelli í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Leikið var í Rothenbach-Halle í Kassel, heimavelli MT Melsungen. Reynir Þór...

Elín Klara og samherjar áfram efstar

Elín Klara Þorkelsdóttir og liðsfélagar í IK Sävehof halda fast í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þær undirstrikuðu það með öruggum sigri á VästeråsIrsta HF, 30:27, á heimavelli í dag. Eftir jafna stöðu í hálfleik, 15:15, tók Sävehof-liðið...
- Auglýsing -

Sigur í jólaleiknum hjá Birgi Steini

Birgir Steinn Jónsson og félagar í IK Sävehof hlupu af sér jólasteikina í dag er þeir mættu og unnu VästeråsIrsta HF, 34:31, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag. Leikurinn var sá fyrsti í leikjatörn í úrvalsdeildum...

Haukur hefur gefið flestar stoðsendingar í Þýskalandi

Haukur Þrastarson hefur verið aðsópsmikill fram til þessa á sínu fyrsta keppnistímabili í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Þegar tímabilið er u.þ.b. hálfnað hefur Haukur gefið flestar stoðsendingar allra leikmanna deildarinnar, alls 94 í 18 leikjum, rúmlega 5 sendingar...

Ómar Ingi er fjórði markahæstur

Fimm íslenskir handknattleiksmenn eru á meðal 35 markahæstu leikmanna þýsku 1. deildarinnar í handknattleik nú um stundir. Ómar Ingi Magnússon er þeirra hæstur með 133 mörk, 44 mörkum á eftir Dananum Mathias Gidsel sem er efstur. Gidsel hefur leikið...
- Auglýsing -

Elmar og félagar skelltu í lás í síðari hálfleik

Elmar Erlingsson og liðsfélagar í Nordhorn-Lingen unnu Eulen Ludwigshafen, 26:20, í 2. deild þýska handknattleiksins í gærkvöld. Leikið var á heimavelli Ludwigshafen sem var marki yfir í hálfleik, 13:12. Nordhorn er áfram í 5. sæti deildarinnar með 23 stig...

Annað tapað stig í 18 leikjum

Hendrik Pekeler tryggði THW Kiel annað stigið í hörkuleik við meistara SC Magdeburg, 26:26, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld er leikið var í Magdeburg að viðstöddum 6.600 áhorfendum í GETEC Arena í Magdeburg. Þetta var aðeins annað...

Ólafur Brim hefur samið við ítalskt félagslið

Handknattleiksmaðurinn Ólafur Brim Stefánsson er sagður hafa samið við ítalska handknattleiksliðið Junior Fasano sem er með bækistöðvar á suðausturhluta landsins. Frá þessu segir á Handkastinu en Ólafur Brim hefur síðustu vikur leikið með Stjörnunni í Olísdeildinni. Samningur Ólafs við ítalska...
- Auglýsing -

Rúnar stýrði Wetzlar inn á sigurbraut í fyrsta heimaleiknum

Rúnar Sigtryggsson stýrði HSG Wetzlar til sigurs í fyrsta heimaleiknum gegn Eisenach í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld, 33:27. Þetta var fyrsti sigur Wetzlar eftir að Rúnar var kallaður til starfa hjá liðinu fyrir rúmri viku í...

Grétar Ari er kominn í undanúrslit í Grikklandi

Grétar Ari Guðjónsson og liðsfélagar í AEK Aþenu tryggðu sér sæti í undanúrslitum grísku bikarkeppninnar í handknattleik karla í dag. AEK lagði PAOK, 26:25, í æsispennandi leik. AEK átti ótrúlegan endasprett og skoraði fimm af síðustu sex mörkum leiksins. Að...

Efsta liðið átti fullt í fangi með botnliðið

Efsta lið þýsku 1. deildarinnar, SC Magdeburg, átti fullt í fangi með að vinna botnlið Leipzig á heimavelli í dag í þýsku 1. deildinni í handknattleik. Leikmenn Leipzig bitu hressilega frá sér í síðari hálfleik og voru ekki langt...
- Auglýsing -

Haukur var á bak við 14 mörk í sigurleik

Haukur Þrastarson lék afar vel þegar lið hans Rhein-Neckar Löwen vann HSV Hamburg, 35:29, á heimavelli í 18. umferð þýsku 1. deildarinnar í handknattleik í dag. Haukur var næstmarkahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen með sjö mörk. Einnig átti hann sjö...

Heiðmar krækti í stig í Kiel – umdeilt vítakast – myndskeið

Undir stjórn Heiðmars Felixsonar náði Hannover-Burgdorf óvæntu jafntefli við THW Kiel, 29:29, á heimavelli Kílarliðsins í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöld. August Pedersen jafnaði metin fyrir Hannover-Burgdorf úr umdeildu vítakasti þegar leiktíminn var úti. Þótt vítakastsdómurinn hafi...

Áfram gefur á bátinn hjá Kolstad

Áfram heldur að gefa á bátinn hjá norska úrvalsdeildarliðinu Kolstad. Eftir stöðugar fréttir af slæmum fjárhag og niðurskurði síðustu vikur þá tapaði liðið óvænt fyrir Fjellhammer, 31:25, í norsku úrvalsdeildinni í gær. Fyrir vikið tapaði liðið efsta sæti deildarinnar...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -