- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Ívar Logi bætir við tveimur árum í Úlfarsárdal

Ívar Logi Styrmisson hefur náð samkomulagi við handknattleiksdeild Fram um að samningur hans við félagið verði framlengdur til næstu tveggja ára. Ívar Logi kom til Fram frá Gróttu fyrir fjórum árum. Hann var markahæsti leikmaður Fram í Olísdeildinni í...

Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...

Mark var ekki dæmt gilt vegna eldingar

Sérstætt atvik átti sér stað á 57. mínútu leiks Vals og KA í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld þegar ljósin blikkuðu í eina sekúndu í N1-höllinni. Blikkið, sem var að völdum eldingar, olli því að mark sem...
- Auglýsing -

Valsmenn kjöldrógu KA-menn í fyrstu viðureign

Valur vann 18 marka sigur á KA, 39:21, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Er þetta mesti markamunur sem hefur verið á milli liða í leikjum Olísdeildar á tímabilinu. Næst mætast liðin í KA-heimilinu á...

KA-liðið er komið til höfuðborgarinnar

Búið er að opna veginn um Kjalarnes og voru leikmenn KA í lest bíla sem beið við lokunarpóst í úthverfi Reykjavíkur. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA staðfesti við handbolta.is klukkan 12.25 að lið hans væri lagt af stað síðasta...

KA-menn lögðu í morgun ótrauðir af stað suður

KA-menn eru á leiðinni suður yfir heiðar þar sem þeirra bíður í kvöld fyrsti undanúrslitaleikurinn við Val í úrslitakeppni Olísdeildar karla. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA staðfesti við handbolta.is snemma í morgun að hann og liðsmenn væru lagðir af...
- Auglýsing -

Öruggur sigur Hauka sem mæta FH í undanúrslitum

Haukar mæta FH-ingum í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik. Haukar lögðu Aftureldingu í oddaleik í átta liða úrslitum í Kuehne+Nagel höllin á Ásvöllum í kvöld, 32:24. Fyrsti undanúrslitaleikur FH og Hauka fer fram í Kaplakrika þriðjudaginn 7. apríl. Viðureign Hauka...

Fram lagði ÍR öðru sinni

Fram mætir Val í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna. Það varð staðfest í kvöld eftir annan sigur Fram-liðsins á ÍR í síðari viðureign liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Lambhagahöllinni í kvöld, 29:25. Framarar unnu fyrri viðureignina, 31:27. Þar af...

Olís kvenna: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026

Hér fyrir neðan er leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik 2026. Dagskráin verður uppfærð eftir því sem úrslitakeppninni vindur fram með úrslitum leikja, leikdögum og leiktímum. Leikir úrslitakeppninnar verða sendir út á Handboltapassanum og valdar viðureignir í opinni dagskrá í...
- Auglýsing -

Haukar unnu nyrðra og mæta ÍBV í undanúrslitum

Haukar unnu KA/Þór öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld, 25:20. Leikið var í KA-heimilinu. Haukar taka þar með þátt í undanúrslitum Íslandsmótsins og mæta ÍBV. Væntanlega verður fyrsta viðureign liðanna í Vestmannaeyjum 15....

Rúnar Kárason lætur staðar numið

Handknattleiksmaðurinn Rúnar Kárason tilkynnti í dag að hann hafi ákveðið að leggja keppnisskóna á hilluna góðu eftir 21 ár í meistaraflokki, þar af í 13 ár ytra í atvinnumennsku. Rúnar, sem verður 38 ára gamall í maí, lauk ferlinum...

Haukur Ingi klæðist bláu

Haukur Ingi Hauksson hefur ákveðið að segja skilið við HK og ganga til liðs við Fram. Haukur Ingi, sem er hægrihandar skytta, hefur vaxið sem handknattleiksmaður á síðustu árum og m.a. átt sæti í yngri landsliðum Íslands undanfarin sumur. Haukur...
- Auglýsing -

Myndasyrpa: Fram – FH, 27:32

Eins og kom fram í gærkvöldi er FH komið í undanúrslit Olísdeildar karla í handknattleik. FH vann Fram í tvígang í átta liða úrslitum, 28:26 í Kaplakrika síðasta fimmtudag og 32:27 í Lambhagahöllinni í gærkvöld. Ekki liggur fyrir hvort...

Leitt að segja það en Aftureldingarmenn vildu þetta meira

„Við áttum bara ekkert skilið úr þessum leik. Þeir voru betri á öllum sviðum frá byrjun,“ sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka vonsvikinn eftir fjögurra marka tap, 26:22, fyrir Aftureldingu í annarri viðureign liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Olísdeildar...

Fórum í gömlu gildin sem hafa reynst okkur best

„Þetta var örugglega einn okkar besti leikur eftir áramótin. Vörn og markvarsla var frábær,“ sagði Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar glaður í bragði eftir að flautað var til leiksloka í Myntkauphöllinni í kvöld þar sem Mosfellingar unnu sannfærandi sigur á...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -