Grótta gerði sér lítið fyrir og lagði Selfoss í nýliðaslag Olísdeildar kvenna í handknattleik í Sethöllinni á Selfoss í kvöld, 25:22, eftir að hafa verið yfir stærstan hluta leiksins, m.a. 12:10 í hálfleik. Úrslit sem koma e.t.v. mörgum á...
Hafdís Renötudóttir landsliðsmarkvörður átti stórleik fyrir Val þegar Íslandsmeistararnir unnu ÍBV með 10 marka mun, 26:16, í annarri umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld. Hafdís varði 15 skot, var með 50% hlutfallsmarkvörslu, og gerði leikmönnum ÍBV...
Önnur umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik hefst í kvöld með tveimur viðureignum. Margafaldir meistarar Vals sækja ÍBV heim og nýliðar deildarinnar, Selfoss og Grótta, eigast við á Selfossi.
Áfram verður haldið við leik í annarri umferð Olísdeildar karla eftir viðureignirnar...
Landsliðskonan Elín Rósa Magnúsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við handknattleiksdeild Vals en lið félagsins varð Íslands-, bikar-, og deildarmeistari í handknattleik kvenna á síðasta keppnistímabili. Elín Rósa lék stórt hlutverk í meistaraliðinu líkt og hún gerði...
ÍR hefur fengið aukinn liðsauka fyrir átökin í Olísdeild kvenna í vetur. Unglingalandsliðskonan Dagmar Guðrún Pálsdóttir hefur verið lánuð til ÍR-liðsins frá Fram. Samningurinn gildir út leiktíðina eftir því sem fram kemur á félagaskiptasíðu HSÍ og verður hún gjaldgeng...
Athygli vakti að aðalmarkvörður kvennaliðs Hauka undanfarin ár, Margrét Einarsdóttir, var ekki í leikmannahópi liðsins í sigurleiknum á Selfossi í fyrstu umferð Olísdeildar á fimmtudaginn í síðustu viku. Hún verður heldur ekki með Haukum í næstu leikjum. Margrét hefur...
Harpa Valey Gylfadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til þriggja ára.Harpa Valey kom til liðs við Selfoss sumarið 2023 frá uppeldisfélagi sínu, ÍBV. Harpa er leikstjórnandi en getur einnig leikið í hægra horni. Á nýliðnu...
Sennilega hafa ekki fleiri konur komið að þjálfun liða í efstu deild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, en á tímabilinu sem nýlega er hafið. Eftir því sem handbolti.is kemst næst eru sex konur við þjálfun hjá fimm af átta liðum...
Rúta sem flutti kvennalið ÍBV í handknattleik og knattspyrnu frá kappleikjum á höfuðborgarsvæðinu í dag lenti í árekstri ekki fjarri Rauðhólum. Svo virðist sem sveigt hafi verið í veg fyrir rútuna.
Rútan var á leiðinni austur í Landeyjarhöfn. Engin...
https://www.youtube.com/watch?v=YNf86mtANxc
„Þetta var döpur byrjun hjá okkur á mótinu. Vissulega gott að vinna en annað er það ekki. Á síðustu vikum höfum við leikið sex æfingaleiki fyrir leikinn í dag. Frammistaðan í dag er áberandi slökust,“ sagði Sigurður Bragason þjálfari...
https://www.youtube.com/watch?v=3nKToT9Q81w
„Það hefði kannski verið sanngjarnt að fá annað stigið,“ sagði Sigurjón Friðbjörn Björnsson þjálfari kvennaliðs Gróttu sem sá á eftir öðru stiginu í viðureign liðsins við ÍBV í fyrstu umferð Olísdeildar kvenna í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í dag.
Viðureignin...
Íslandsmeistarar Vals unnu ÍR með níu marka mun í Olísdeild kvenna í handknattleik í dag í síðasta leik fyrstu umferðar, 35:26. Leikurinn fór fram á Hlíðarenda og var Valsliðið með þriggja marka forskot þegar blásið var til hálfleiks, 17:14.
ÍR-ingar...
ÍBV vann nauman sigur á Gróttu í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi í 1. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 23:21. Í raun munaði sáralitlu að nýliðar Gróttu kræktu í annað stigið undir lokin eftir að hafa svo gott sem...
https://www.youtube.com/watch?v=Lu3ZIdJdBaI
„Við setjum pressu á okkur að halda áfram sömu leið og við vorum á síðasta keppnistímabili,“ segir Karen Tinna Demian fyrirliði ÍR í samtali við handbolta.is spurð um komandi keppnistímabil. ÍR var nýliði í Olísdeildinni á síðasta keppnistímabili, sýndi...
https://www.youtube.com/watch?v=JlUumraW-LI
„Við erum með mjög vel mannað lið og ætlum okkur þar af leiðandi að vera áfram í toppnum en auðvitað eru til fleiri sem ætla sér að vinna titla,“ segir Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari meistaraliðis Vals í handknattleik kvenna...