Handbolti.is heldur skrá yfir helstu breytingar á veru íslenskra þjálfara, jafnt innan lands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber á meðal þjálfara og félög hafa staðfest að taka gildi í sumar.
Guðmundur Þórður Guðmundsson tekur við...
Handbolti.is heldur skrá yfir helstu félagaskipti sem greint hefur verið frá á síðustu vikum og mánuðum meðal handknattleikfólks, jafnt innan lands sem utan. Hér fyrir neðan er það sem hæst ber í félagskiptum á meðal handknattleikskvenna og félög hafa...
Bjarni Fritzson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokksliðs karla hjá ÍR. Hefur félagið gert við hann þriggja ára samning. Bjarni var einnig þjálfari ÍR-liðsins frá 2014 til 2020 og þekkir vel til í herbúðum þess.
ÍR vann sér sæti í...
Sigurður Bragason og handknattleiksdeild ÍBV hafa komist að samkomulagi um að Sigurður verði áfram þjálfari meistaraflokks kvenna. Samningurinn nær til næstu tveggja keppnistímabila.
Sigurður hefur verið þjálfari kvennaliðs ÍBV undangengin þrjú ár og voru báðir aðilar áhugasamir um áframhaldandi samstarf,...
Elín Klara Þorkelsdóttir var valin efnilegasti leikmaður Olísdeildar kvenna í verðlaunahófi HSÍ á dögunum. Valið kom fáum á óvart sem fylgst hafa með kvennahandknattleik síðustu misseri. Elín Klara hefur jafnt og þétt orðið burðarás í liði Hauka í Olísdeildinni...
Handknattleikskonan Ásta Björt Júlíusdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Hún snýr þar með aftur eftir eins árs veru hjá Haukum.
Ásta Björt, sem er örvhent skytta og með öruggari vítaskyttum Olísdeildarinnar, er Eyjamaður í húð og...
Grímur Hergeirsson verður ekki í þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá ÍBV á næsta keppnistímabili. Þetta kemur fram í frétt Tíguls í Vestmannaeyjum. Grímur fékk þakklætisvott frá handknattleiksdeild ÍBV í lokahófi deildarinnar í gærkvöld.
Grímur kom inn í þjálfarateymið með Erlingi Richardssyni...
Sunna Jónsdóttir og Rúnar Kárason voru valin bestu leikmenn meistaraflokksliða ÍBV á nýliðnu keppnistímabili. Þau ásamt fleiri leikmönnum liðsins og voru heiðruð í lokahófi handknattleiksdeildar ÍBV sem fram fór með pomp og prakt í sal Kiwanisklúbbsins í Vestmannaeyjum í...
Elín Klara Þorkelsdóttir og Brynjólfur Snær Brynjólfsson voru valin bestu leikmenn Hauka á nýliðinni leiktíð. Tilkynnt var um valið á lokahófi handknattleiksdeildar á dögunum þar sem fleiri viðurkenningar voru veittar til leikmanna liðsins.
Einnig var tækifærið notað til þess að...
Handknattleikskonan Sara Katrín Gunnarsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við HK. Sara er uppalinn HK-ingur og hefur þar af leiðandi leikið upp yngri flokka félagsins. Hún var í vaxandi hlutverki í meistaraflokksliði félagsins í Olísdeildinni á síðustu leiktíð.
Sara...
Adam Thorstensen markvörður Stjörnunnar og U20 ára landsliðsins sem tekur þátt í EM í júlí hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til ársins 2025. Adam kom til félagsins árið 2020 frá ÍR og var þá hálft í hvoru hættur...
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson eru dómarar ársins í Olísdeildum karla og kvenna keppnistímabilið 2021/2022. Þeir fengu viðurkenningar því til staðfestingar í verðlaunahófi HSÍ sem haldið var í Mínigarðinum í hádeginu í dag.
Þetta er í fjórtánda sinn sem...
Í rúm 30 ár hefur Handknattleiksdómarasambandið, HDSÍ, afhent viðurkenningar til leikmanna í efstu deild karla og kvenna sem vekja athygli fyrir háttvísi, drenglyndi og prúðmennsku í hvívetna í kappleikjum Íslandsmótsins.
Nú eins og áður þá var voru viðurkenningar HSDÍ...
Rut Arnfjörð Jónsdóttir KA/Þór og Óðinn Þór Ríkharðsson eru bestu leikmenn Olísdeilda karla og kvenna leiktíðina 2021/2022. Það er niðurstaða í kjöri leikmanna og þjálfara deildarinnar sem kynnt var í verðlaunahófi Olís- og Grill 66 deildar karla og kvenna...
Verðlaunahóf Olís- og Grill 66 deildar karla og kvenna fer fram í Minigarðinum í dag og hefst klukkan 12.
Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með streymi frá viðburðinum. Útsending hefst klukkan 12.15.
https://youtu.be/x5COMB48Ods