- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

Aron valinn íþróttakarl ársins hjá FH

Aron Pálmarsson landsliðsmaður í handknattleik var valinn íþróttakarl FH 2024 en að vanda stóð félagið fyrir hófi á gamlársdag þar sem valið fór fram. Frjálsíþróttakonan Irma Gunnarsdóttir varð fyrir valinu í kvennaflokki. „Aron var algjör lykilleikmaður FH-liðsins á síðasta tímabili...

Tímabilinu lokið hjá Ingvari Degi – brotnaði illa á landsliðsæfingu

Handknattleiksmaðurinn ungi hjá Íslandsmeisturum FH, Ingvar Dagur Gunnarsson, leikur ekki fleiri leiki með liðinu á keppnistímabilinu eftir að hann fótbrotnaði við vinstri ökkla á æfingu með 19 ára landsliðinu rétt fyrir jólin. „Ég fór í aðgerð í gær sem...

Íslandsmeistararnir eru afrekslið Hafnarfjarðar

Íslandsmeistarar FH í handknattleik karla er afrekslið Hafnarfjarðar 2024. Tóku nokkrir leikmenn ásamt þjálfaranum Sigursteini Arndal við viðurkenningu frá bænum í gær í hófi sem haldið var í íþróttahúsinu við Strandgötu þar sem FH-ingar hafa marga hildi háð. „Meistaraflokkur karla...
- Auglýsing -

Elín Klara er íþróttakona Hafnarfjarðar annað árið í röð

Landsliðskonan úr Haukum, Elín Klara Þorkelsdóttir, var valin íþróttakona Hafnarfjarðar annað árið í röð. Tilkynnt var um valið í hófi sem fram fór í gamla góða íþróttahúsinu við Strandgötu í gær. Elín Klara er orðin ein besta handknattleikskona landsins. Hún...

Perla Ruth kjörin íþróttakona Selfoss

Landsliðskonan í handknattleik og leikmaður Selfoss, Perla Rut Albertsdóttir, var valin íþróttakona Ungmennafélagsins Selfoss fyrir árið 2024. Verðlaunin voru afhent á verðlaunahátíð Umf. Selfoss sem fram fór í félagsheimilinu Tíbrá fyrir jól. Fyrst í dag sagði handknattleiksdeild Selfoss frá. Perla...

Ísak Logi framlengir dvölina hjá Stjörnunni

Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Ísak Logi Einarsson, hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna. Ekki kemur fram í tilkynningu Stjörnunnar til hvers langs tíma pilturinn er samningsbundinn félaginu.Ísak Logi, sem er sonur Einars Gunnars Sigurðssonar fyrrverandi landsliðsmanns og leikmanns Selfoss og...
- Auglýsing -

Unglingalandsliðsmenn skrifa undir þriggja ára samninga við Aftureldingu

Handknattleiksmennirnir efnilegu, Harri Halldórsson og Stefán Magni Hjartarson, hafa skrifað undir nýja þriggja ára samninga við Aftureldingu. Báðir hafa verið í veigamiklum hlutverkum hjá Aftureldingu í vetur þrátt fyrir að vera að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki.Fyrir utan...

Rangur maður fékk rautt spjald

Rautt spjald sem Stjörnumaðurinn ungi, Ísak Logi Einarsson, fékk í viðureign Stjörnunnar og Vals í Olísdeild karla 14. desember, var afturkallað. Dómarar leiksins sáu það eftir á að Ísak Logi gerðist ekki brotlegur, eins og þeir héldu. Annar leikmaður...

Kröfum Stjörnunnar var hafnað – úrslitin standa

Úrslit leiks Stjörnunnar og HK í 12. umferð Olísdeildar karla í handknattleik, 27:27, standa samkvæmt dómi dómstóls HSÍ sem birtur var í morgun. Bæði aðalkröfu og varakröfu Stjörnunnar um að HK yrði dæmdur leikurinn tapaður eða þá leikið yrði...
- Auglýsing -

Kopyshynskyi og Einar Baldvin tryggðu Aftureldingu annað stigið

Einar Baldvin Baldvinsson markvörður og Ihor Kopyshynskyi tryggðu Aftureldingu annað stigið gegn KA í síðasta leik 14. umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í KA-heimilinu. Einar Baldvin varði skot frá nafna sínum Einari Rafni Eiðssyni á síðustu sekúndum leiksins. Áður...

Bæði lið köstuðu frá sér sigri í Vestmannaeyjum

ÍBV og FH skildu jöfn, 26:26, í 14. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag í viðureign þar sem leikmenn beggja liða fóru illa að ráði sínu á síðustu sekúndum þegar möguleiki var á að tryggja sigur....

Dagskráin: Tveir leikir í Olísdeild og tveir í Grill 66-deildinni

Síðustu leikir ársins í Olísdeild karla og í Grill 66-deildum karla fara fram í dag. Strax upp úr hádeginu taka leikmenn ÍBV og Íslandsmeistara FH til við leik í íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum. Aftureldingarmenn eru á leiðinni norður á Akureyri...
- Auglýsing -

Við viljum skora mikið – það er okkar leikur

„Fyrst og fremst lagði frábær sóknarleikur grunn að sigrinum auk þess sem við náðum tveimur góðum köflum í hvorum hálfleik í vörninni. Á þeim köflum tókst okkur að ná forskoti,“ segir Einar Jónsson þjálfari Fram í samtali við handbolta.is...

Verðum betri á nýju ári

„Markvarslan var ekki góð og vörnin var ekki nógu góð,“ segir Jón Ómar Gíslason markahæsti leikmaður Gróttu með 10 mörk í fimm marka tapi liðsins fyrir Fram, 38:33, í 14. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal...

Valsmenn hristu af sér slenið og unnu Stjörnuna

Valsmenn tóku af skarið í síðari hálfleik gegn Stjörnunni í kvöld og unnu sannfærandi sex marka sigur í viðureign liðanna í Olísdeild karla á Hlíðarenda í kvöld, 40:34. Valsarar náðu sér þar með á strik aftur eftir tvo tapleiki...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -