- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeildir

- Auglýsing -

KA-menn léku sér að Stjörnunni

KA-menn kjöldrógu Stjörnumenn í lokaleik níundu umferðar Olísdeildar karla í handknattleik í KA-heimilinu í kvöld. Lokatölur 36:31 en munurinn var mestur 12 mörk þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Með sigrinum færðist KA upp að hlið Vals í þriðja...

Sannfærandi sigur Fram á Selfossi

Þótt ekki munaði nema tveimur mörkum þegar upp var staðið í Sethöllinni í kvöld þá var sigur Fram á Selfossi öruggari en lokatölurnar gefa til kynna, 29:27. Staðan var 16:13 að fyrri hálfleik loknum. Selfoss er í sjöunda sæti deildarinnar...

Haukar stóðust áhlaup Þórsara

Haukar komust á ný upp að hlið Aftureldingar á topp Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld er þeir lögðu Þór, 35:31, í Kuehne+Nagel-höllinni eins og keppnishöllin á Ásvöllum nefnist um þessar mundir. Haukar hafa þar með 14 stig eftir...
- Auglýsing -

Dagskráin: Ekki verður slegið slöku við

Átta leikir fara fram í Olísdeildunum og Grill 66-deildum kvenna og karla í kvöld, föstudaginn 7. nóvember. Olísdeild karla:Kuehne+Nagel-höllin: Haukar - Þór, kl. 18.KA-heimilið: KA - Stjarnan, kl. 19. Staðan og næstu leikir í Olísdeildum. Olísdeild kvenna:Sethöllin: Selfoss - Fram, kl. 18. Grill...

Afturelding áfram efst – Arnór fór á kostum – Róbert lokaði markinu – jafntefli í Skógarseli

Afturelding situr ein í efsta sæti Olísdeildar karla í handknattleik eftir sigur á FH, 25:23, í Myntkaup-höllinni að Varmá í kvöld. Mosfellingar hafa tveggja stiga forskot á Hauka sem mæta Þór á Ásvöllum annað kvöld. Aftureldingarliðið var tveimur mörkum undir...

Handboltahöllin: Á að taka fastar á svona brotum?

Í síðasta þætti Handboltahallarinnar voru skoðuð tvö keimlik leikbrot og velt upp hvort of vægt væri tekið á þeim. Fyrir bæði var refsað með tveggja mínútna brottvísun varnarmanna. Báðir sóknarmenn, sem brotið er á, skella harkalega í gólfið. Hörður Magnússon...
- Auglýsing -

Arnar Daði þjálfar Stjörnuna með Hönnu Guðrúnu

Arnar Daði Arnarsson mun starfa með Hönnu Guðrúnu Stefánsdóttur við þjálfun kvennaliðs Stjörnunnar út þetta keppnistímabil. Þetta hefur Handkastið samkvæmt heimildum í frétt í gærkvöld. Fullvíst er að þær heimildir séu bærilega öruggar enda er Arnar Daði annar ritstjóra...

Dagskráin: Fjórir leikir Olísdeild karla í kvöld

Keppni hefst í Olísdeildar karla í kvöld eftir nokkurt hlé vegna landsleikja. Fjórir leikir fara fram í 9. umferð en tveir síðustu leikir umferðarinnar verða á dagskrá annað kvöld. Leikir kvöldsins Olísdeild karla 9. umferð:Skógarsel: ÍR - ÍBV, kl. 18.30.Sethöllin: Selfoss...

Valur tók öll völd í síðari hálfleik og vann örugglega á Ásvöllum

Valur vann afar sannfærandi sigur á Haukum á Ásvöllum í kvöld í upphafsleik 8. umferðar Olísdeildar kvenna, 31:24, eftir að hafa náð mest níu marka forskoti, 29:20, þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Valur er áfram efstur með 14...
- Auglýsing -

Patrekur Smári framlengir samning sinn hjá ÍR

Patrekur Smári Arnarsson hefur framlengt samningi sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2028. Patrekur er fæddur árið 2008 og er uppalinn ÍR-ingur. Hann þykir bráðefnilegur línumaður og er öflugur á báðum endum vallarins. Patrekur hefur einnig verið viðloðinn yngri landslið...

Hallgrímur í tveggja leikja bann

Aganefnd hefur úrskurðað Hallgrím Jónasson aðstoðarþjálfara kvennaliðs Stjörnunnar í tveggja leikja bann eftir því sem fram kemur í tilkynningu aganefndar í dag. Þar segir að Hallgrímur hafi hegðað sér mjög ódrengilega að loknum leik Stjörnunnar og KA/Þór í Olísdeild...

Sara Dögg best í 7. umferð – fjórar með í fyrsta sinn

Sara Dögg Hjaltadóttir var valin leikmaður 7. umferðar Olísdeildar kvenna af Handboltahöllinni, vikulegum þætti um Olísdeildirnar sem er á dagskrá hvert mánudagskvöld. Þetta er í annað sinn sem Sara Dögg er valin besti leikmaður umferðarinnar. Hún hreppti einnig hnossið...
- Auglýsing -

Handboltahöllin: Sjónum beint að Matthildi og Söru

Fjallað var um sigur ÍR á Haukum í Handboltahöllinni á mánudagskvöld og ekki síst beint sjónum að frammistöðu Matthildar Lilju Jónsdóttur og Söru Daggar Hjaltadóttur. Sú síðarnefnda er markahæst í Olísdeild kvenna með 73 mörk eftir sjö leiki. Myndskeið Handboltahallarinnar...

Dagskráin: Haukar og Valur mætast á Ásvöllum

Einn leikur fer fram í Olísdeild kvenna í handknattleik í kvöld þegar Íslandsmeistarar Vals sækja Hauka heim á Ásvelli í upphafleik 8. umferðar deildarinnar. Flautað verður til leiks klukan 18. Viðureigninni er flýtt vegna leikja beggja liða í Evrópukeppni félagsliða...

Handboltahöllin: Hvað var teiknað upp í leikhléinu?

Síðasta sókn Fram í viðureigninni við ÍBV í Olísdeild kvenna í Lambhagahöllinni á sunnudaginn greip athygli Harðar Magnússonar umsjónmanns Handboltahallarinnar og sérfræðinga hans í þætti gærkvöldsins. Fram tók leikhlé marki undir, 34:33, þegar 14 sekúndur voru til leiksloka. Sóknin...
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -