- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Daði gefur ekki þumlung eftir – nýr samningur klár

Jón Heiðar Sigurðsson formaður handknattleiksdeildar KA og Daði Jónsson t.h. Ljósmynd/KA
- Auglýsing -


Daði Jónsson, varnarmaðurinn öflugi hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild KA. Daði sem er 27 ára gamall er grjótharður KA maður í gegn er ákaflega öflugur varnarmaður sem er einnig lunkinn sóknarmaður. Daði kom mörgum á óvart í vetur sem leið er hann leysti vinstra hornið með glæsibrag.


Daði var í lykilhlutverki í uppbyggingu KA liðsins eftir að félagið hóf aftur að leika undir eigin merki árið 2017 og hefur haldið því síðan. Hann hélt utan til náms í Danmörku árið 2021 en sneri aftur til KA árið 2023 og hefur nú leikið alls 130 leiki fyrir KA í deild, bikar og Evrópukeppni.

„Það er gríðarlega jákvætt að Daði haldi áfram að gefa af sér til félagsins bæði innan sem utan vallar. Við munum byggja KA liðið upp á ungum og öflugum KA strákum næstu árin og það er afar sterkt að hafa KA leiðtoga sem brennur fyrir félagið eins og Daði gerir svo sannarlega til að leiða strákana áfram,“ segir í tilkynningu kampakáts KA-fólks.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -