- Auglýsing -
Átjánda umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld með tveimur viðureignum, annarri í Kaplakrika og hinni í Vestmannaeyjum þangað sem leikmenn Aftureldingar mæta til leiks gegn ÍBV klukkan 19.30.
Í Kaplakrika ríkir eftirvænting fyrir viðureign kvöldsins í ljósi tíðinda gærdagsins um að Aron Pálmarsson hafi styrkt þjálfarateymi karlaliðsins og verði Sigursteini Arndal þjálfara til halds og trausts út leiktíðina.
Aron er orðinn aðstoðarþjálfari hjá FH
Olísdeild karla, 18. umferð:
Kaplakriki: FH – Selfoss, kl. 19.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Afturelding, kl. 19.30.
- Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Báðir leikir kvöldsins verða sendir út á Handboltapassanum.
- Auglýsing -



