- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagskráin: Barátta um fjórða sæti og forsmekkur að undanúrslitaleik

- Auglýsing -

Einn leikur fer fram í Olísdeild kvenna í kvöld þegar 17. umferð af 21 hefst. Haukar taka á móti Fram í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 19.30. Lyktir leiksins geta haft mikil áhrif á hvort liðið hreppir fjórða sæti deildarinnar og þar af leiðandi heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.


Einnig er leikurinn e.t.v. forsmekkurinn að undanúrslitaleik liðanna í bikarkeppninni síðari í þessum mánuði á sama stað.

Eins og sakir standa eru Fram og Haukar jöfn að stigum í fjórða og fimmta sæti með 17 stig.

Úrslit fyrri viðureigna liðanna á keppnistímabilinu:
27. september: Haukar – Fram 27:27.
11. nóvember: Fram – Haukar 31:29.

  • Leikur kvöldsins verður sendur út á Handboltapassanum eins og aðrir leikir Íslandsmótsins í handknattleik.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -