Fyrsti leikur átta liða úrslita Poweradebikarsins í handknattleik karla fer fram í kvöld. Stjarnan sækir ÍR heim í Skógarsel klukkan 19.30.
ÍR og Stjarnan áttust við í Olísdeild karla í handknattleik í 10. umferð 14. nóvember. Stjarnan vann leikinn, 38:33.
ÍR lagði Þór, 38:32, í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins sunnudaginn 17. nóvember, 38:32. Sama dag hafði Stjarnan betur eftir framlengdan leik við Fjölni, 39:33.
Á morgun verður haldið áfram keppni í átta liða úrslitum Poweradebikarsins þegar Fram fær Val í heimsókn og KA mætir Aftureldingu í KA-heimilinu. Hvenær fjórða viðureignin fer fram skýrist ekki fyrr en áfrýjunardómstóll HSÍ hefur kveðið upp sinn dóm vegna viðureignar Hauka og ÍBV í 16-liða úrslitum.
Leikur kvöldsins
Poweradebikar karla, 8-liða úrslit:
Skógarsel: ÍR – Stjarnan, kl. 19.30 – sýndur á RÚV2.