- Auglýsing -
Önnur viðureign ÍBV og Hauka í undanúrslitum Olísdeildar karla í handknattleik fer fram í Vestmannaeyjum í kvöld. Flautað verður til leiks klukkan 18.
ÍBV-liðið gerði sér lítið fyrir og vann fyrstu viðureign liðanna sem fram fór á Ásvöllum á sunudaginn með fimm marka mun, 35:30, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik, 15:14. Eyjamenn fóru á kostum síðustu ríflega 20 mínútur leiksins, hreinlega yfirspiluðu Hauka á köflum. Leikmenn Hauka ætla ekki að láta það endurtaka sig enda verður staða þeirra orðinn afar erfið ef þeir tapa í kvöld.
Þriðja viðureign liðanna verður á Ásvöllum á laugardaginn og hefst klukkan 18.
Oft hefur andað köldu á milli liðanna inni á leikvellinum og leikmenn liðanna margra hildi háð í gegnum tíðina, ekki síst síðasta áratuginn. Vísir rifjar upp í morgun þegar grunnt var á því góða í rimmu vorið 2019.
Olísdeild karla, undanúrslit, annar leikur:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar (1:0), kl. 18 – sýndur á Stöð2Sport.
Leikjadagskrá úrslitakeppni Olísdeildar karla er að finna hér.
- Auglýsing -