Í dag fer fram í Laugardalshöll fyrsti landsleikurinn í handknattleik síðan í byrjun nóvember 2020. Íslenska landsliðið í handknattleik karla tekur á móti Tékkum í Höllinni klukkan 16.
Gríðarleg eftirvænting ríkir fyrir viðureigninni og seldust síðustu aðgöngumiðarnir á miðvikudaginn. Eftirspurn hefur verið gríðarleg síðustu daga, þrátt fyrir slæmt tap í fyrri leiknum við Tékka ytra á dögnum. Borðleggjandi er að hægt hefði verið að selja töluvert fleiri miða ef húsnæði leyfði.
Auk landsleiksins í Höllinni verður einnig leikið í Grill 66-deild kvenna í dag og í 2. deild karla.
Leikir dagsins
Undankeppni EM karla:
Laugardalshöll: Ísland – Tékkland, kl. 16 – sýndur á RÚV.
*Uppselt varð á leikinn fyrir nokkrum dögum.
Grill 66-deild kvenna:
Úlfarsárdalur: Fram U – Grótta, kl. 13.30.
Staðan í Grill 66-deild kvenna.
2.deild karla:
Varmá: Afturelding U – Grótta U, kl. 14.
Kórinn: HK U – Fjölnir U, kl. 18.
Staðan í 2. deild karla.