Stefnt er á að leikir næstsíðustu umferðar Olísdeildar karla í handknattleik fari fram í kvöld. Allir skulu þeir hefjast klukkan 19.30 og verða sendir út á Handboltapassanum.
Mikil spenna ríkir í toppbaráttunni. Aðeins munar tveimur stigum á Val sem er efstur og Haukum sem sitja í þriðja sæti. FH er þar á milli. Einnig er kapphlaup um fjórða sæti deildarinnar og heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. KA er sem stendur í 4. sæti með 26 stig en ÍBV og Afturelding eru aðeins stigi á eftir í fimmta og sjötta sæti. Fram, sem vann Val á síðasta fimmtudag, er í sjöunda sæti, aðeins stigi á eftir ÍBV og Aftureldingu.
HK stendur best að vígi í kapphlaupinu um áttunda og síðasta sætið í úrslitakeppninni.
ÍR og Stjarnan sitja í tveimur neðstu sætunum. Liðið mætast í kvöld í Skógarseli. ÍR þarf á sigri að halda til þess að forðast fall úr deildinni. Fyrri viðureign liðanna lauk með jafntefli, 27:27, í Hekluhöll Stjörnunnar 13. nóvember.
Leikir kvöldsins
Olísdeild karla, 21. umferð:
KA-heimilið: KA – FH.
N1-höllin: Valur – HK.
Myntkaup-höllin: Afturelding – Þór.
Kuehne+Nagel höllin: Haukar – Selfoss.
Skógarsel: ÍR – Stjarnan.
Lambhagahöllin: Fram – ÍBV.
- Allir leikirnir eiga að hefjast klukkan 19.30.
- Allir leikir verða sendir út á Handboltapassanum.
Staðan:

Síðasta umferð fimmtudaginn 12. mars kl. 19.30:
Stjarnan – Fram.
HK – Haukar.
ÍBV – Valur.
Þór – KA.
Selfoss – Afturelding.
FH – ÍR.



