Sextánda umferð Olísdeildar karla í handknattleik hefst í kvöld í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ þegar Afturelding og Stjarnan mætast. Flautað verður til leiks klukkan 19.30. Afturelding er í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig eftir 15 leiki.
Stjarnan hefur sótt í sig veðrið í síðustu leikjum og unnið fjórar viðureignir í röð í deild og bikar. Liðið er þar með komið upp í sjöunda sæti átta stigum á eftir Aftureldingu.
Leikurinn að Varmá í kvöld verður sendur út í beinni og opinni útsendingu í sjónvarpi Símans og hefst klukkan 19.30 eins og áður segir.
Næsti leikur 16. umferðar Olísdeildar karla verður annað kvöld þegar Grótta og Haukar eigast við í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.