Síðasti leikur í bili í 7. umferð Olísdeildar karla fer fram í kvöld þegar Stjarnan sækir KA heim í KA-heimilið. Leikurinn hefst klukkan 18. KA-menn eru komnir til síns heima eftir að hafa sótt austurríska liðið HC Fivers heim í Evrópubikarkeppninni um síðustu helgi.
KA-liðið situr í 10. sæti Olísdeildar með fimm stig eftir sex leiki og er aðeins stigi á eftir Stjörnunni sem er í sjöunda sæti. Tólf dagar hafa liðið frá síðasta leik Stjörnumanna í deildinni.
Áfram verður haldið með fimmtu umferð Grill 66-deildar karla sem hófst í fyrrakvöld með viðureign Hauka U og HK. Víkingur fær ungmennalið Fram í heimsókn á gamla heimavöll Fram í Safamýri klukkan 19.30. Víkingar hafa hreiðrað um sig í Safamýri eftir Fram kom sér fyrir í Grafarholti í sumar.
Á tíunda tímanum í kvöld mæta Fjölnismenn, undir stjórn Sverris Eyjólfssonar, til leiks í Origohöll Valsara og glíma við taplaust ungmennalið Hlíðarendafélagsins.
Olísdeild karla, 7. umferð:
KA-heimilið: KA – Stjarnan, kl. 18 – sýndur á KAtv.
Staðan í Olísdeild karla.
Grill 66-deild karla, 5. umferð:
Safamýri: Víkingur – Fram U, kl. 19.30 – sýndur á Víkingurtv.
Origohöllin: Valur U – Fjölnir, kl. 21.15.
Staðan í Grill 66-deild karla.