Umspil Olísdeildar kvenna í handknattleik hefst í dag. Í umspilinu eigast við þrjú lið sem voru í Grill 66-deildinni í vetur, HK, Afturelding og Víkingur, og eitt úr Olísdeildinni, Stjarnan.
Framundan eru undanúrslitaleikir umspilsins, annars vegar á milli Stjörnunnar og Víkings og hinsvegar takast á HK og Afturelding. Hvor rimma getur að hámarki tekið þrjá leiki, þ.e. vinna þarf tvo leiki til að komast í úrslitaleikina um þátttökurétt í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð.
Fyrstu leikirnir fara fram í dag. Önnur umferð verður leikin á miðvikudag og oddaleikir liðanna eru ráðgerðir á laugardaginn 19. apríl hafi þá þegar ekkert liðanna unnið tvisvar sinnum.
Leikir dagsins
Umspil Olísdeildar kvenna, 1. umferð:
Hekluhöllin: Stjarnan – Víkingur, kl. 16.
Kórinn: HK – Afturelding, kl. 17.
- Leikirnir verða sendir út á Handboltapassanum. Stöðuuppfærslu frá leikjunum verður að finna á HBStatz.
Leikjadagskrá umspilsins í heild: