- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dagur Máni skrifar undir samning og fetar í fótspor foreldranna

- Auglýsing -

Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Dagur Máni Siggeirsson, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar. Hann heldur þar með áfram að feta í fótspor foreldra og fleiri úr nærfjölskyldunni á handboltavellinum.


„Dagur hefur farið í gegnum allt yngri flokka starfið hjá okkur og tekið miklum framförum á undanförnum misserum. Það er virkilega gaman að sjá uppalda unga leikmenn fara alla leið og semja við sitt félag.

Við bindum miklar vonir við Dag í framtíðinni og hlökkum mikið til þess að fylgjast vel með hans framþróun í bláu treyjunni,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Eplið og eikin

Dagur Máni hefur ekki langt að sækja handknattleikshæfileikana og áhugann. Foreldrar hans eru Siggeir Magnússon og Guðný Gunnsteinsdóttir. Siggeir lék árum saman með Aftureldingu en einnig Víkingi og fleiri félögum. Guðný var um árabil sigursæl með Stjörnunni og var fyrirliði Íslands- og bikarmeistaraliða félagsins. Einnig lék Guðný 82 landsleiki á árunum 1986-1996. Faðir Guðnýjar og afi Dags Mána er Gunnsteinn Skúlason leikmaður Vals, landsliðsmaður í handknattleik og Ólympíufari 1972.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -