Dagur Snær Steingrímsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK frá og með næsta tímabili. Hann tekur við starfa í júní. Hilmar Guðlaugsson, sem er þjálfari HK, tilkynnti fyrir nokkru að hann ætlaði sér að hætta þegar keppnistímabilið væri á enda.
Dagur Snær kemur til HK frá Val þar sem hann hefur verið aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna en hefur einnig þjálfað yngri flokka félagsins. Hann hefur einnig komið að þjálfun yngri landsliða Íslands.
„Mikil ánægja ríkir í HK með að fá Dag Snæ til okkar. Hann býr yfir yfirgripsmikilli reynslu við þjálfun og kemur til með að styðja við það markmið HK að koma liði meistaraflokks kvenna í fremstu röð. Kvennalið HK er sem stendur í öðru sæti í Grill66 deild kvenna og hefur stefnt að því að spila Olís-deildinni á næsta tímabili. HK hefur verið að byggja upp ungt og öflugt kvennalið og það verður hlutverk Dags Snæs að leiða þessa vinnu á næstu þremur árum,“ segir í tilkynningu HK í kvöld.
HK er í öðru sæti Grill 66-deildar kvenna með 30 stig eins og Grótta sem er efst vegna innbyrðisúrslita í leikjum liðanna.




