- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Dana skoraði fjögur mörk – sigur hjá Elíasi og Árna

- Auglýsing -

Volda virðist jafnt og þétt vera að heltast úr lestinni í toppbaráttu næstefstu deildar kvenna í Noregi. Liðið tapaði í dag fyrir Utleira á heimavelli, 32:27, og situr í 6. sæti, 10 stigum á eftir Flint Tønsberg sem trónir á toppnum.

Landsliðskonan, Dana Björg Guðmundsdóttir, skoraði fjögur mörk fyrir Volda í leiknum í dag. Hún kveður félagið í sumar og gengur til liðs við úrvalsdeildarliðið Larvik.

Dana Björg til eins af stórliðum Noregs

Sigur hjá Elíasi og Árna

Í næstefstu deild karla vann Ryger Stavanger, undir stjórn Elíasar Más Halldórssonar, lið Bodø, 28:24, í Stavanger idrettshall. Árni Bergur Sigurbergsson skoraði fjögur mörk fyrir Ryger Stavanger.

Ryger Stavanger er í 13. og næst neðsta sæti deildarinnar með 10 stig eftir 18 leiki. Átta umferðir eru eftir af deildarkeppninni.

Elías Már tók við þjálfun Ryger Stavanger fyrir keppnistímabilið. Árni Bergur kom einnig til liðs í upphafi þessa tímabils frá ØIF Arendal.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -