- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Danir í undanúrslit fjórða HM í röð

Kampakátir Danir þegar sæti í undanúrslitum HM var í höfn í kvöld. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Fjórða skiptið í röð eru Danir komnir í undanúrslit á heimsmeistaramóti í handknattleik. Brasilíumenn voru Dönum engin fyrirstaða í fyrri leik átta liða úrslita í Unity Arena-keppnishöllinni í Bærum í Noregi í kvöld að viðstöddum 5.922 áhorfendum. Lokatölur, 33:21, fyrir heimsmeistarana sem þykja líklegir til að vinna heimsmeistaratitilinn í fjórða sinn í röð. Danir hafa haft mikla yfirburði í leikjum sínum á mótinu og að meðaltali hafa þeir unnið hvern leik með ríflega 13 marka mun.


Brasilíumenn náðu að halda í við Dani fram eftir leiknum. Aðeins var þriggja marka munur í hálfleik, 15:12. Eftir um tíu mínútur í síðari hálfleik skildu leiðir liðanna fyrir fullt og fast. Jafnt og þétt dró úr baráttuþreki brasilíska liðsins þar til þeir lögðu nánast árar í bát í algjöru vonleysi síðustu mínúturnar enda við ofurefli að etja.

Nikolaj Jacobsen landsliðsþjálfari Danmerkur þakkar leikmönnum brasilíska landsliðsins fyrir leikinn í Bærum í kvöld. Ljósmynd/EPA

Brasilíska liðið hefur annars gert það gott á mótinu og náði m.a. í fyrsta sinn í átta liða úrslit sem varð til þess að í fjórða sinn gerðist það á heimsmeistaramóti að tvö lið utan Evrópu komast svo langt. Hitt liðið er það egypska.

Gidsel og Nielsen frábærir

Mathias Gidsel, Rasmus Lauge og Emil Jakobsen skoruðu sex mörk hver fyrir Danmörku. Gidsel átti auk þess átta stoðsendingar. Hann er markahæstur á mótinu og ekki þyrfti að koma verulega í opna skjöldu þótt hann Gidsel verði valinn maður mótsins.

Emil Nielsen hélt uppteknum hætti. Hann varði 15 skot í danska markinu, 45%.

Vinicios Angelo Lima de Carvalho var markahæstur í brasilíska liðinu með sjö mörk.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -