- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Döhler semur við nýliða norsku úrvalsdeildarinnar

Phil Döhler markvörður flytur frá Svíþjóð til Noregs. Ljósmynd/J.L.Long
- Auglýsing -


Þýski handknattleiksmarkvörðurinn Phil Döhler hefur samið við Sandefjord Håndball, nýliða norsku úrvalsdeildarinnar. Félagið segir frá þessu í dag. Döhler hefur undanfarin tvö ár staðið vaktina í marki HF Karlskrona en um áramót var tilkynnt að leiðir hans og sænska liðsins myndu skilja í lok leiktíðar.


Döhler, sem verður þrítugur 15. júní, lék með FH frá 2019 til 2023 við afar góðan orðstír og var einn besti markvörður Olísdeildarinnar. Hann réri á ný mið þegar Daníel Freyr Andrésson gekk til liðs við FH.

Döhler kom til FH frá Magdeburg í Þýskalandi.
Sanderfjord Håndball vann næst efstu deild norska handknattleiksins í vor eftir mikla keppni við Viking TIF sem mættust í úrslitaleik um efsta sætið í lokaumferðinni. Sanderfjord Håndball vann, 27:25.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -