- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Donni og félagar fóru vel af stað

- Auglýsing -

Kristján Örn Kristjánsson, Donni, og liðsfélagar í Skanderborg AGF fóru vel af stað í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í dag. Þeir unnu Bjerringbro/Silkeborg á útivelli, 41:36, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 20:14.


Donni skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar. Emil Lærke var markahæstur með átta mörk en æði mörg voru líka púðurskotin.

Mads Svane Knudsen skoraði 14 mörk fyrir Bjerringbro/Silkeborg í 26 skotum. Alveg dæmalaus frammistaða.

Meistararnir töpuðu óvænt

Óvænt úrslit voru í hinni viðureign dagsins í átta liða úrslitunum. Meistarar Aalborg Håndbold töpuðu fyrir Fredericia, 41:36, er leikið var í Middelfart Sparekasse. Komu úrslitin flatt upp á marga enda hefur Aalborg Håndbold borið ægishjálm yfir önnur lið úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni. Til að mynda tapaði liðið aðeins einum leik af 26 í deildarkeppninni og fór taplaust í gegnum bikarkeppnina. Fredericia rétt slapp inn í úrslitakeppnina eftir að hafa átt í mesta basli nær allt keppnistímabilið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -