- Auglýsing -
Síðasta umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla fór fram í dag. Lið Aalborg Håndbold var fyrir löngu orðið deildarmeistari enda tapaði það aðeins einum af 26 leikjum. Skanderborg AGF, sem Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikur með náði sínum allra besta árangri í deildinni eftir að liðið varð til eftir sameiningu Skanderborg og Aarhus Håndbold fyrir nokkrum árum. Skanderborg hafnaði í öðru sæti og hefur úrslitakeppnina í efsta sæti B-riðils með tvö stig eins og Aalborg Håndbold í hinum riðlinum.
- TTH Holstebro sem Arnór Atlason þjálfar gerði jafntefli við Skanderborg AGF, 35:35, á heimavelli. Stigið nægði TTH Holstebro til þess að ná fjórða sætinu vegna þess að Mors-Thy og Skjern töpuðu. Liðin þrjú luku keppni með 29 stig hvert.
- Jóhannes Berg Andrason skoraði eitt mark fyrir TTH Holstebro.
- Í A-riðli úrslitakeppninnar verða Aalborg Håndbold, GOG, Skjern og Bjerringbro/Silkeborg. Aalborg byrjar með tvö stig, GOG eitt stig en hin tvö verða án stiga.
- Í B-riðli úrslitakeppninnar verða Skanderborg AGF, TTH Holstebro, Mors Thy og Fredericia HK. Skanderborg AGF byrjar með tvö stig í forgjöf, TTH eitt stig en Mors og Fredericia verða án stiga.
- Allir leika við alla í hvorum riðli tvöfalda umferð. Tvö efstu liðin komast í undanúrslit.
- Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði einu sinni fyrir Skanderborg sem varð í öðru sæti og liðið náði sínum besta árangri í sögunni.
- Elvar Ásgeirsson var markahæstur hjá Ribe-Esbjerg með sex mörk auk þriggja stoðsendinga í eins marks sigri á HØJ, 32:31. Leikið var á heimavelli HØJ á Sjálandi. Ribe-Esbjerg hafnaði í 9. sæti og rétt missti af sæti í úrslitakeppni átta efstu liða.
- Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fjögur mörk og Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk í 14 marka tapi TMS Ringsted, 40:26, í heimsókn til deildarmeistara Aalborg Håndbold.
Lokstaðan:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



