Draumur félaga í íþróttafélaginu Þór á Akureyri um íþróttahús virðist vera að rætast en í gær samþykkti bæjarráð Akureyrar samkomulag um byggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði Þórs í Glerárhverfi. Frá þessu segir Akureyri.net.
Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til notkunar árið 2031 og flyst þá m.a. allt handboltastarf Þórs úr Íþróttahöllinni og úr fleiri stöðum í bænum og utan hans.
Frumkostnaðaráætlun gerir því ráð fyrir að mannvirkið kosti frá 3 milljörðum til 4,5 milljarða á verðlagi janúar 2026.
Gólfflötur íþróttasalarins verður 2.300 – 2.500 fermetrar og mun rúma tvo löglega handboltavelli. Í byggingunni verður aðstaða fyrir allar deildir Þórs, samkomusalur, skrifstofur og fundarrými, svo sumt sé nefnt.
Akureyri.net segir að í minnisblaði um verkefnið komi fram að félagið búi við þá sérstöðu að 45% af iðkendum á aldrinum 5 til 19 ára geti ekki sótt æfingar á Þórssvæðinu.


