- Auglýsing -
Dregið var í dag í riðla Opna Evrópumóts 16 ára landsliða kvenna sem fram fer í Partille í Svíþjóð 29. júní til 3. júlí. Ísland verður eitt 20 þátttökuþjóða á mótinu. Dróst lið þjóðarinnar í fyrsta riðil.
Riðill 1: Ungverjaland, Króatía, Tékkland, Ísland, Litáen.
Riðill 2: Spánn, Holland, Serbía, Færeyjar, Georgía.
Riðill 3: Frakkland, Svíþjóð, Rúmenía, Slóvakía, Finnland.
Riðill 4: Þýskaland, Sviss, Noregur, Portúgal, Tyrkland.
Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í átta liða úrslit. Önnur lið leika um sæti níu til tuttugu.
Sigurvegarar fyrri Evrópumóta 16 ára landsliða kvenna:
Danmörk (2006, 2010).
Noregur (2008).
Rússland (2012, 2014).
Svíþjóð (2016).
Ungverjaland (2018).
Spánn (2022).
Sviss (2024).
- Auglýsing -


