Bikarmeistarar Vals mæta Haukum í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í handknattleik miðvikudaginn 15. mars í Laugardalshöll. Dregið var í hádeginu í dag. Í hinni viðureign undanúrslitanna eigast við ÍBV og Selfoss.
Leikið verður til undanúrslita og úrslita í Laugardalshöll í fyrsta sinn frá árinu 2020.
Í undanúrslitum karla leika Framarar við Hauka annarsvegar og Afturelding og Stjarnan hinsvegar. Undanúrslitaleikirnir verða fimmtudaginn 16. mars í Laugardalshöll eins og undanúrslit í kvennaflokki.
Sigurliðin leika til úrslita í Laugardalshöll laugardaginn 18. mars. Valur er ríkjandi bikarmeistari í karlaflokki. Valur féll úr leik í átta liða úrslitum fyrir Stjörnunni.
Handbolti.is fylgdist með drættinum í textalýsingu.