Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður á RÚV var einróma kjörin formaður Samtaka íþróttafréttamanna, SÍ, á aðalfundi samtakanna sem fram fór í dag. Hún er fyrsta konan sem gegnir embætti formanns í 69 ára sögu SÍ. Tómas Þór Þórðarson formaður SÍ undanfarin sex ár sagði af sér. Hann er ekki lengur starfandi íþróttafréttamaður og er þar af leiðandi ekki lengur félagi í SÍ.
Valur Páll Eiríksson (Sýn) var kjörinn ritari og kemur nýr inn í stjórnina. Þá er Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson (RÚV) áfram gjaldkeri. Þorkell Gunnar hefur átt sæti í stjórninni frá 2013.
Varamenn eru áfram Sindri Sverrisson (Sýn) og Einar Örn Jónsson (RÚV). Allir eru þeir kjörnir til eins árs setu. Formaður er kjörinn til tveggja ára.
Félagsmenn SÍ eru 25.
Samtök íþróttafréttamanna hafa staðið að kjöri Íþróttamanns ársins frá 1956.
Eini starfsmaður handbolti.is er félagi í SÍ.