- Auglýsing -
- Auglýsing -

Efnilegur Stjörnumaður hripar undir sinn fyrsta samning

Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Handknattleiksmaðurinn efnilegi, Matthías Dagur Þorsteinsson, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna. Í tilkynningu frá Stjörnunni segir að Matthías Dagur sé gríðarlega fjölhæfur og skemmtilegur leikmaður sem bundnar séu miklar vonir við innan félagsins.

Matthías Dagur er í U17 ára landsliðinu sem tekur þátt í Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Norður Makedóníu eftir rúman mánuðu. Hann var í U17 ára landsliðinu sem tók þátt í Nordic Open í Færeyjum um síðustu helgi.

„Við bindum miklar vonir við Matthías og hlökkum til að fylgjast með honum vaxa og þróast áfram innan okkar raða,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -