- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Ég hef ekkert svar“

- Auglýsing -

„Þetta var bara skita hjá okkur,“ sagði Katrín Anna Ásmundsdóttir leikmaður Fram eftir átta marka tap liðsins fyrir Haukum, 35:27, í Olísdeild kvenna á Ásvöllum í kvöld. Framliðið var heillum horfið í síðari hálfleik og var mest 12 mörkum undir. Katrín Anna var þar af leiðandi skiljanlega vonsvikin.


„Við vorum bara þremur mörkum undir í hálfleik og vorum staðráðnar í að mæta alveg dýrvitlausar til leiks í síðari hálfleik en annað kom á daginn. Ég hef ekkert svar við því hvernig stóð á þessari frammistöðu okkar. Mér fannst vera and- og orkuleysi hjá okkur. Þær yngri komu flottar inn í lokin,“ sagði Katrín Anna og bætti við að leikur Framliðsins hafi því miður ekki vera gott upplegg fyrir undanúrslitaleik sömu liða í bikarkeppninni eftir hálfan mánuð.

Annað kemur ekki til greina

„Við ætluðum ekki að sýna þessa hlið. Ég trúi ekki öðru en að við mætum betur gíraðar í bikarleikinn. Annað kemur ekki til greina,“ sagði Katrín Anna Ásmundsdóttir, leikmaður Fram og íslenska landsliðsins, í viðtali við handbolta.is í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -