- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi bikarmeistari í Svíþjóð

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson varð sænskur bikarmeistari í dag með liði sínu IFK Kristianstad þegar liðið vann Ystads IF HF, 40:37, í úrslitaleik í Halmstad Arena. Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Einars Braga með liðinu og reyndar aðeins í annað sinn sem IFK vinnur sænsku bikarkeppnina.


Einar Bragi skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum en sænski landsliðsmaðurinn Axel Månsson, sem gerði leikmönnum íslenska landsliðsins oft gramt í geði í vináttulandsleikjum á dögunum, var markahæstur með 10 mörk.

IFK var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. M.a. var forskot liðsins fimm mörk þegar fyrri hálfleikur var að baki, 23:18.

Arnar Birkir hreppti brons

Amo HK, sem Arnar Birkir Hálfdánsson leikur með, vann HF Karlskrona í úrslitaleik um bronsverðlaunin, 33:32. Arnar Birkir skoraði fimm mörk.

Arnór Viðarsson skoraði sex mörk fyrir HF Karlskrona.

Ólafur Andrés Guðmundsson var skráður á leikskýrslu hjá HF Karlskrona í fyrsta sinn á leiktíðinni en hann yfirgefur félagið í sumar og leggur skóna á hilluna. Ólafur var ekki í Halmstad Arena í dag þótt nafn hans væri á leikskýrslu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -