- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Einar Bragi og félagar töpuðu fyrir meisturunum

- Auglýsing -

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar töpuðu mikilvægum stigum í toppbaráttu sænsku úrvalsdeildarinnar er þeir biðu lægri hlut í heimsókn til Ystad, 35:32. Staðan að loknum fyrri hálfleik var 19:16.


Einar Bragi skoraði þrjú mörk og gaf tvær stoðsendingar í leiknum en sjö markskot hans fóru forgörðum. IFK Kristianstad er eftir sem áður í efsta sæti deildarinnar með 36 stig eftir 22 umferðir. Fjórar umferðir eru eftir. Malmö er í öðru sæti, þremur stigum á eftir IFK Kristianstad, og á leik til góða. Ystad-liðið, sem vann sænska meistaratitilinn á síðasta keppnistímabilinu situr í sjötta sæti, 14 stigum á eftir Kristianstad.

Dagur kom lítið við sögu

Dagur Sverrir Kristjánsson skoraði ekki mark þegar Vinslövs HK vann HK Drott, 30:22, í Halmstad í gærkvöld. Liðin eiga sæti í Allsvenskan, næstefstu deild sænska handknattleiksins. Vinslövs HK er í næstneðsta sæti deildarinnar með fjórar umferðir eftir, fjórum stigum á eftir Drott sem er í þriðja neðsta sæti.

Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -