Elín Klara Þorkelsdóttir var valin í úrvalslið heimsmeistaramóts 20 ára landsliða sem lauk í Skopje í Norður Makedóníu í gær. Hún er fyrst íslenskra handknattleikskvenna sem valin er í úrvalslið á heimsmeistaramóti.
Auk Elínar Klöru eru tveir úr heimsmeistaraliði Frakka í úrvalsliðinu auk þess sem mikilvægasti leikmaður mótsins er úr franska liðinu. Tvær úr silfurliði Ungverja eru einnig í liðinu, ein úr hollenska liðinu sem varð í þriðja sæti og ein úr danska landsliðinu auk Elínar Klöru, sem eins og margar aðrar úr íslenska landsliðinu, fór á kostum á mótinu. Ísland hafnaði í 7. sæti eftir sigur á Sviss, 29:26, í gærmorgun.
Úrvalslið HM 20 ára landsliða kvenna:
Markvörður: Klára Zaj, Ungverjalandi.
Vinstra horn: Matilde Vestergaard, Danmörku.
Vinstri skytta: Lea Faragó, Ungverjalandi.
Leikstjórnandi: Elín Klara Þorkelsdóttir.
Hægri skytta: Alieke van Maurik, Hollandi.
Hægra horn: Manon Errard, Frakklandi.
Lína: Lilou Pintat, Frakklandi.
Mikilvægasti leikmmaðurinn (MVP): Lylou Borg, Frakklandi.
Markahæst: Jelena Vukčević, Svartfjallalandi, 74 mörk.
Þess má geta að Vukčević skoraði 13 mörk af 27 mörkum Svartfellinga í tapi, 36:27, fyrir íslenska liðinu á heimsmeistaramótinu.
Sigur á Sviss í lokaleiknum – 7. sætið á HM í höfn
HMU20: Dagskrá og úrslit síðustu leikdagana
The #NorthMacedonia2024 All-star Team ⭐
— International Handball Federation (@ihfhandball) June 30, 2024
MVP: Lylou Borg 🇫🇷
GK: Klára Zaj 🇭🇺
LW: Matilde Marie Vestergaard 🇩🇰
LB: Lea Faragó 🇭🇺
CB: Elín Klara Thorkelsdóttir 🇮🇸
RB: Alieke Van Maurik 🇳🇱
RW: Manon Errard 🇫🇷
LP: Lilou Pintat 🇫🇷
Top scorer: Jelena Vukčević🇲🇪 — 74 goals pic.twitter.com/9bCSEGYXm3