Elín Klara Þorkelsdóttir og samherjar í IK Sävehof endurheimtu í dag efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik með sigri á Skuru IK, 31:28, á útivelli. Elín Klara var næstmarkahæst hjá IK Sävehof með sex mörk, þar af eitt úr vítakasti. Einnig er hún skráð fyrir þremur stoðsendingum.
IK Sävehof hefur þar með 28 stig eftir 16 leiki. Önnereds, sem læddist upp í efsta sætið í vikunni, er stigi á eftir en hefur einnig leikið einum leik fleira. Skuru er í 9. sæti.
Meistararar síðasta árs, Skara HF, sitja í fjórða sæti með 23 stig eftir 17 leiki. Skara tapaði á útivelli í dag fyrir Höörs HK H 65, 31:24. Leikið var í Höör á Skáni.
Lena Margrét með þrjú mörk
Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði þrjú mörk fyrir Skara HF auk þess að gefa tvær stoðsendingar.



