- Auglýsing -
Elvar Ásgeirsson lék frábærlega og leiddi Ribe-Esbjerg áfram til eins marks sigurs á SönderjyskE, 36:35, í fyrsta leik liðanna í umspili fimm liða í dönsku úrvalsdeildinni. Liðin eiga það sameiginlegt að vilja forðast að mæta liði úr næstefstu deild í einvígi um keppnisrétt í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Elvar átti aðkomu að fimmtán af 35 mörkum Ribe-Esbjerg að þessu sinni.
Elvar var markahæstur leikmanna Ribe-Esbjerg með átta mörk, gaf sjö stoðsendingar og fiskaði þrjú vítaköst. Einnig lét hann til sín taka í vörninni.
Staðan í neðrihlutakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar:
Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -



