Tryggvi Þórisson og félagar í Elverum unnu Follo HK, 30:26, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Tryggvi skoraði ekki mark í leiknum. Elverum hefur þar með fjögurra stiga forskot á Kolstad í efsta sæti deildarinnar. Kolstad tapaði óvænt fyrir ØIF Arendal, 31:30, á heimavelli. Sjö umferðir eru eftir af deildarkeppninni.
Liðið sem vinnur norsku deildina verður landsmeistari, ekki það sem vinnur úrslitakeppnina eins og t.d. er hér á landi, í Danmörku og Svíþjóð svo tekin séu dæmi. Elverum varð norskur meistari fyrir ári eftir að Kolstad hafði orðið meistari í tvö ár í röð.
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur af mörkum Kolstad í tapleiknum í gær. Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar. Sigurjón Guðmundsson var í marki Kolstad helming leiksins eða þar um bil og varði 9 skot, 38%.
Staðan í norsku úrvalsdeildinni í karlaflokki:



