- Auglýsing -
Flautað verður til leiks á Evrópumóti kvenna í handknattleik í dag klukkan 17 í dag með viðureign Rúmena og Þjóðverja í D-riðli.
Keppni hefst í A og C-riðlum mótsins á morgun, föstudag. Leikið verður á víxl í riðlunum fjórum til og með 8. desember.
Leikir A og B-riðla fara fram í Jyske Bank Boxen í Herning á Jótlandi. Leikir C og D-riðla í Sydbank Arena í Kolding, einnig á Jótlandi.
Eftir riðlakeppnina taka við milliriðlar með leikjum 10., 11., 13. og 15. desember.
Leikir dagsins á EM:
B-riðill: 17.15 Rússland – Spánn – sýndur á RÚV2
B-riðill: 19.30 Svíþjóð – Tékkland
D-riðill: 17.00 Rúmenía – Þýskaland
D-riðill: 19.30 Noregur – Pólland – sýndur á RÚV2
- Handbolti.is hefur fjallað af krafti um EM kvenna í aðdraganda mótsins. Ekki verður slegið slöku við meðan á mótinu stendur.
- Auglýsing -