Fyrirliði landsliðsins, Sandra Erlingsdóttir, segir mikla eftirvæntingu ríkja innan leikmannahópsins vegna viðureignarinnar við Portúgal í lokaumferð undankeppni Evrópumótsins. Allar séu staðráðnar í að vinna viðureignina og tryggja sér þátttökurétt á öðru Evrópumótinu í röð. Leikur Íslands og Portúgals hefst á Ásvöllum klukkan 16 í dag.
Íslenska liðið þarf að vinna leikinn með eins marks mun og enda þá með sama stigafjölda og Portúgal en fer áfram færri mörgum í mínus, Ísland -15, Portúgal -17. Reglugerð EHF, grein 9:11, liður f. https://www.eurohandball.com/media/iqugjaze/women-s-ehf-euro-qualifiers-regulations.pdf#page=22
„Ég tel okkur eiga góða möguleika á sigri, ekki síst vegna þess að leikurinn fer fram hér heima með fullu húsi áhorfenda. Nú snýst málið um að nýta meðbyrinn og spila vel. Vonbrigðum eftir tapið í Færeyjum á miðvikudaginn hefur verið ýtt til hliðar. Nú er fókusinn á leikinn við Portúgal,“ segir Sandra.
Eins og venjulega þá er markvarsla, vörn og hraðaupphlaup einn lykilþátta í sigri í handboltaleikjum. „Svo eru mörg atriði sem við getum lagað úr leiknum í Færeyjum. Það hefur verið frábær stígandi í okkar leik en eins og vill henda þá kemur einn og einn slæmur leikur inn á milli. Við erum búnar með hann og megum ekki dvelja við það.
Það er frábært að fá úrslitaleik eins og þennan og við erum staðráðnar í að nýta þetta tækifæri,“ segir Sandra Erlingsdóttir fyrirliði kvennalandsliðsins um leið og hún viðurkennir að þungu fargi hafi verið létt þegar ljóst var að Svartfellingar unnu Portúgal í Porto á fimmtudagskvöld. Portúgalskur sigur í þeim leik hefði gert út um vonir Íslands á úrslitaleik í dag.
Viðureign Íslands og Portúgals hefst klukkan 16. Textalýsing verður á handbolti.is og bein útsending í lifandi myndum í útsendingu RÚV.
A-landsliðs kvenna – fréttasíða.



