Keppni hófst í kvöld í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handknattleik. Keppnin fer fram í fjórum fjögurra liða riðlum og taka liðin með sér úrslit í 32-liða riðakeppninni sem leikin var frá október og fram í byrjun desember á síðasta ári. Sem dæmi má nefna að Flensburg og Bidasoa Irun eru saman í riðli eitt. Þau voru einnig saman í riðli 32-liða úrslitanna. Flensburg vann báða leikina. Úrslitin fylgja áfram í þessari umferð keppninnar.
Eftir fjórar umferðir þá fara liðin sem eru í öðru og þriðja sæti hvers riðils áfram í útsláttarkeppni. Efstu lið hvers riðils sitja yfir í þeirri umferð en mæta galvösk til leiks í átta liða úrslitum gegn sigurliðum úr úrslitakeppninni. Úrslitahelgin, final4 á slæmri íslensku, verður í lok maí þar sem fjögur lið kljást um sigurlaunin.
Hér fyrir neðan eru úrslit kvöldsins, staðan í riðlunum og stuttlega getið þeirra Íslendinga sem komu við og komu ekki við sögu í leikjunum.
1. riðill:
SG Flensburg-Handewitt – THW Kiel 30:32 (15:13).
Montpellier Handball – Bidasoa Irun 38:33 (17:17).
Staðan:
2. riðill:
Elverum – Fraikin BM. Granollers 37:28 (20:10)
-Tryggvi Þórisson skoraði 1 mark fyrir Elverum.
FC Porto – Skanderborg 28:33 (17:18).
-Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði ekki mark fyrir Porto.
-Kristján Örn Kristjánsson, Donni, lék ekki með Skanderborg vegna meiðsla.
Staðan:
3. riðill:
Benfica – HC Vardar 40:35 (24:16)
-Stiven Tobar Valencia skoraði 6 mörk fyrir Benfica.
MT Melsungen – IFK Kristianstad 33:29 (17:18).
-Reynir Þór Stefánsson skoraði 7 mörk fyrir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson ekkert.
-Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði 5 mörk fyrir IFK Kristianstad.
Staðan:
4. riðill:
Fredericia – Kadetten Schaffhausen 30:32 (12:15).
-Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 9 mörk fyrir Kadetten.
-Ólafur Örn Haraldsson var eftirlitsmaður á leiknum í Middelfart Sparekasse Arena.
TSV Hannover-Burgdorf – RK Nexe 34:28 (18:11).
-Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
Staðan:



