Evrópumeistarar SC Magdeburg eru komnir í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik þótt enn séu þrjár umferðir eftir af riðlakeppninni. Magdeburg innsiglaði sæti í átta liða úrslitum í kvöld með öruggum sigri á danska liðinu GOG, 37:30, í GETEC Arena í Magdeburg að viðstöddum 6.240 áhorfendum.
Magdeburg er efst og taplaust með 22 stig eftir 11 leiki í B-riðli. Sama hvernig verkast í leikjunum þremur sem eftir eru getur liðið aldrei hafnað neðar en í öðru sæti. Tvö efstu lið í hvorum riðli Meistaradeildar fara beint í átta liða úrslit og sleppa þar með við fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
Eftir jafnan fyrri hálfleik í GETEC Arena tóku leikmenn Magdeburg völdin snemma í síðari hálfleik og gerðu það sem þurfti til þess að vinna leikinn.
Ómar Ingi Magnússon var markahæstur hjá Magdeburg með sex mörk, öll úr vítaköstum. Hann átti einnig tvær stoðsendingar. Philipp Weber og Tim Hornke skoruðu fimm mörk hvor.
Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar.
Elvar Örn Jónsson er enn þá frá keppni vegna meiðsla.
William Enoch skoraði sex mörk fyrir GOG og Frederik Pedersen og Oskar Jakobsen skoruðu fjórum sinnum hvor.
Staðan í riðlunum:




