- Auglýsing -

Færeyingar lögðu Frakka og eru komnir í átta liða úrslit HM

Áfram halda færeysku piltarnir að gera það gott á HM 21 árs landsliða. Ljósmynd/IHF
- Auglýsing -


Færeyingar gerðu sér lítið fyrir og unnu Frakka, 28:27, í fyrri umferð milliriðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla, skipað leikmönnum 21 árs og yngri í Póllandi í dag. Þar með er færeyska liðið komið í átta liða úrslit mótsins líkt og það gerði á HM 21 árs landsliða fyrir tveimur árum.

Isak Vedelsbøl skoraði sigurmarkið af línu tæpum tveimur mínútum fyrir leikslok eftir að hafa fengið sendingu frá Óla Mittún sem lék við hvern sinn fingur í leiknum eins og í öðrum færeyska landsliðsins til þessa í mótinu.


Frakkar voru marki yfir, 17:16, að loknum fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur var hnífjafn og spennandi allt til leiksloka. Bæði lið fengu tækifæri til þess að bæta við mörkum eftir að Vedelsbøl skoraði 28. og síðasta mark leiksins.

Danir, sem unnu Rúmena í fyrri leik dagsins í milliriðli þrjú, 37:30, hafa fjögur stig eins og Færeyingar. Lið þjóðanna mætast á morgun í uppgjöri um efsta sætið í riðlinum.

Óli Mittún skoraði níu mörk og gaf níu stoðsendingar og var atkvæðamestur Færeyinga. Vedelsbøl og Niklas Gaard skoruðu fjögur mörk hvor. Aleksandar Lacok varði 10 skot í markinu, 30%.

Naël Tighiouart skoraði níu mörk í níu skotum og var markahæstur Frakka.

Ítarlegri tölfræði.

Føroyar feldu Fraklandi og skulu spæla HM-fjórðingsfinalu

Framdu eitt av aldarinnar brøgdum – FØROYAR ERU Í U21 HM-FJÓRÐINGSFINALUNI

HMU21-’25: Milliriðlar, úrslit, staðan, allir leikir

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -