Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur gengið frá samningi við færeyska hornamanninn Jóhannes Bjørgvin til næstu tveggja ára. Jóhannes gekk til liðs við Stjörnuna fyrir síðasta tímabil frá færeyska liðinu VÍF í Vestmanna. Hann skoraði 47 mörk í Olísdeildinni og var með 75% skotnýtingu.
Small inn í liðið
„Jóhannes hefur smollið vel inn í okkar lið og var mikill vilji hjá báðum aðilum að halda samstarfinu áfram. Jóhannes bætti sig mikið í vetur og er leikmaður sem leggur sig alltaf 110% fram og það viljum við sjá í Stjörnunni,” segir Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar í tilkynningu frá félaginu.
Við viljum meira
„Ég er mjög spenntur fyrir næsta tímabili. Við erum að halda meira og minna sama unga liðinu og í fyrra, og nú höfum við heilt tímabil saman að baki sem mun án efa nýtast okkur vel. Ég trúi því að við getum byggt ofan á það og náð enn betri árangri. Við viljum meira,” sagði Færeyingurinn, Jóhannes Bjørgvin við undirskriftina eftir því sem fram kemur í tilkynningu Stjörnunnar.