Handknattleiksdeild FH hélt lokahóf sitt á dögunum. Þá var tækifærið notað og veittar viðurkenningar til leikmanna sem sköruðu framúr á tímabilinu sem var að ljúka. Eins voru veittar viðurkenningar til nokkurra sem náðu áfanga á ferli sínum fyrir félagið.
Fanney Þóra Þórsdóttir og Ásbjörn Friðriksson stóðu fremst meðal jafningja.
Besti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Fanney Þóra Þórsdóttir.
Efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna:
Karen Hrund Logadóttir.
Besti leikmaður meistaraflokks karla:
Ásbjörn Friðriksson.
Mestu framfarir meistaraflokks karla:
Birgir Már Birgisson.
Muggarabikar (veittur af stuðningsm.klúbbnum Muggi)
Meistaraflokkur kvenna:
Emma Havin Sardarsdóttir.
Meistaraflokkur karla:
Leonharð Þorgeir Harðarson.
Áfangaleikir:
100 leikir fyrir FH:
Aþena Arna Ágústsdóttir.
Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir.
Birgir Már Birgisson.
200 leikir fyrir FH:
Jón Bjarni Ólafsson.
Ágúst Birgisson.
300 leikir fyrir FH:
Ísak Rafnsson.
Fleiri myndir af þeim sem hlutu viðurkenningar á lokahófinu er að finna á Facebook-síðu handknattleiksdeildar FH.