Leikmenn íslenska landsliðsins í handknattleik karla, þjálfarar og starfsfólk eru komin til Búdapest eftir að hafa farið með leiguflugi á vegum Icelandair frá Keflavík í morgun ásamt nokkrum farþegum til viðbótar s.s. fjölmiðlamönnum, Sérsveitinni, stuðningsmannafélagi landsliðanna í handknattleik, og nokkrum áhangendum.
Leikmenn og þjálfarar er að koma sér fyrir á hóteli í Búdapest og hefja síðan lokaundirbúninginn fyrir Evrópumótið. Fyrsti leikurinn er á föstudaginn gegn Portúgal og verður flautað til leiks klukkan 19.30.
Handbolti.is var með í för í morgun og mun flytja fréttir af mótinu næstu daga, jafnt í máli sem myndum. Hafliði Breiðfjörð ljósmyndari var með myndavél sína á lofti frá því að lagt var af stað frá Keflavíkurflugvelli í morgunsárið og þangað til leikmenn og starfsmenn tíndu saman töskur sínar og héldu frá flugvellinum í Búdapest og á hótelið. Brot af myndum Hafliða eru hér fyrir neðan.