- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

FH deildarmeistari annað árið í röð

Deildarmeistarar FH í Olísdeild karla 2025. Ljósmynd/J.L.Long
- Auglýsing -


FH er deildarmeistari í Olísdeild karla í handknattleik annað árið í röð. FH-ingar unnu öruggan sigur á ÍR í kvöld, 33:20, og luku keppni með alls 35 stig í 22 leikjum. Valur hafnaði í öðru sæti þrátt fyrir tap fyrir Haukum í kvöld, 35:33.

  • Afturelding náði þriðja sæti deildarinnar og bikarmeistarar Fram höfnuðu í fjórða sæti.
  • HK varð í áttunda sæti og tekur þátt í úrslitakeppni Olísdeildar í fyrsta sinn í 13 ár.
  • Grótta varð næst neðst og tekur þátt í umspili um sæti í Olísdeildinni og mætir Herði í undanúrslitum.
  • Fjölnir var fallinn í Grill 66-deildina fyrir umferðina í kvöld.
  • ÍR og KA eru komin í sumarfrí.

Úrslit síðustu leikja Olísdeildar


Úrslitakeppni Olísdeild karla hefst föstudaginn 4. apríl. Neðantalin lið mætast:


FH – HK, 4. apríl kl. 19.30.
Fram – Haukar, 4. apríl kl. 19.30.
Valur – Stjarnan, 5. apríl kl. 19.30.
Afturelding – ÍBV, 5. apríl kl. 19.30.

  • Önnur umferð verður 7. og 8. apríl, þriðja umferð 11. og 12. apríl.
  • Undanúrslit hefjast miðvikudaginn 16. apríl.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -